Lífið

Samfélagsmiðlar og New York í forgrunni í endurgerð Gossip Girl þáttanna

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Áhorfendur þáttanna Gossip Girl vilja vita hvort einhver úr gamla leikhópnum bregði fyrir í endurgerð þáttanna.
Áhorfendur þáttanna Gossip Girl vilja vita hvort einhver úr gamla leikhópnum bregði fyrir í endurgerð þáttanna. Vísir/getty
Framleiðendur unglingaþáttanna Gossip Girl, sem fjalla um forríka yfirstéttarkrakka sem keppa um vinsældir og völd í einkaskóla í Manhattan með samfélagsmiðla að vopni, snýr aftur á skjáinn vorið 2020 en í örlítið breyttri mynd og með nýjum leikhópi.

Þættirnir fóru í loftið árið 2007 en lokaþáttur Gossip Girl var sýndur 17. desember 2012.

„Hin alvitra blaðurskjóða“ er sögumaður þáttanna en bandaríska leikkonan Kristen Bell talar fyrir hana þó að henni bregði aldrei fyrir á skjánum. Þættirnir byggja á samnefndum bókaflokki eftir Cevily von Ziegesaren. Josh Schwartz og Stephanie Savage eru framleiðendur þáttanna og koma aftur að gerð nýju þáttanna.

Upprunalegu þættirnir voru sýndir á sjónvarpsstöðinni CW en nýju þættirnir verða sýndir á glænýrri streymisveitu Warner Media en öll Friends-þáttaröðin verður til dæmis sýnd þar á næsta ári.

Framleiðendur munu leggja mikla áherslu á samfélagsmiðla í nýju þáttunum. „Hann mun sýna hversu mjög samfélagsmiðlarnir og sjálf borgarmynd New York hefur breyst á þessum árum sem hafa liðið“.

Aðstandendur þáttanna hafa ekki viljað greina frá því hvort einhver úr gamla leikhópi Gossip Girl muni bregða fyrir í nýju þáttunum en segja má að Lake Meester, Penn Badgley, Chase Crawford, Blake Lively og Ed Westwick hafi brotist til frægðar með þáttunum.

Penn Badgley ásamt mótleikonu sinni Elizabeth Lail og leikaranum John Stamos í þáttunum You.Vísir/getty
Badgley, sem fór með hlutverk Dans Humphrey, vill þó ekki láta bendla sig við nýju þættina og leitar í annars konar hlutverk. Hann gagnrýndi skilaboð þáttanna sem væru skaðleg en á sama tíma „normalíserandi“ þegar hann fór í viðtöl í tengslum við spennuþættina You sem sýndir eru á Netflix. 

Í þáttunum leikur hann hinn bókhneigða Joe Goldberg sem fær konu á heilann og þróar með sér stórhættulega þráhyggju. Áhorfendur þáttanna hafa lýst upplifun sína af þáttunum sem bæði hrollvekjandi og ruglingslega því illmennið Joe er vitundarmiðja þáttanna. 

Badgley sagði eftir á að hyggja að ekki væri í raun ekki neinn svakalegur munur á Joe og Humphrey. Samfélagið viðurkenni og á stundum upphefji jafnvel skaðlega hegðun sé hún í nafni ástar.

Meester sem fór með hlutverk Blair Waldorf sagði á síðasta ári að hún myndi ekki vilja leika Waldorf aftur þrátt fyrir „einstaka og frábæra lífsreynslu“ við tökur á þáttunum.

Blake Lively sem lék Serenu van der Woodsen var þó öllu opnari fyrir hugmyndinni um að leika sitt gamla hlutverk. „Hver veit,“ sagði Lively sem bætti við að þau hefðu öll haft svo gaman af því að vinna saman í New York.


Tengdar fréttir

Gossip Girl-leikkona gjaldþrota

Kelly Rutherford, sem lék í þáttunum Gossip Girl, hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum. Hún hefur átt í harðvítugri forræðisdeilu við fyrrum eiginmann sinn sem hefur höggið stór skörð í fjárhag hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×