Innlent

Hlýðir á Víking Heiðar og heim­sækir meðal annars Ár­bæjar­safn og Vest­manna­eyjar

Atli Ísleifsson skrifar
Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, og Elke Büdenbender forsetafrú.
Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, og Elke Büdenbender forsetafrú. Getty
Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, og Elke Büdenbender forsetafrú koma í ríkisheimsókn til Íslands í næstu viku ásamt fylgdarliði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands. Þar segir að gert sé ráð fyrir að þau dvelji hér dagana 12. og 13. júní en haldi af landi brott föstudaginn 14. júní.

Steinmeier tók við embætti forseta Þýskalands í mars 2017 en hafði áður gegnt embætti utanríkisráðherra landsins á árunum 2005 til 2009 og 2013 til 2017.

Í tilkynningunni segir að heimsóknin hefjist með formlegri móttökuathöfn á Bessastöðum klukkan 10, miðvikudaginn 12. júní. Forseti Íslands mun síðan eiga fund með forseta Þýskalands og forsetarnir ræða við blaðamenn eftir það.

„Í kjölfarið taka við hádegisverður í Marshallhúsinu í boði Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, heimsókn í Alþingi og fundur með forsætisráðherra í Ráðherrabústaðnum.

Síðdegis opnar forseti Þýskalands formlega sýningu í Árbæjarsafni til minningar um Þjóðverja sem fluttu búferlum til Íslands á árunum eftir síðari heimsstyrjöldina.

Eliza Reid forsetafrú og Elke Büdenbender forsetafrú Þýskalands munu heimsækja samhæfingarmiðstöðina í Skógarhlíð fyrir hádegi og stoðtækjafyrirtækið Össur eftir hádegið.

Loks bjóða forseti Íslands og forsetafrú til stuttra tónleika Víkings Heiðars Ólafssonar píanóleikara í Eldborg og síðan hátíðarkvöldverðar á Kolabrautinni miðvikudaginn 12. júní.

Fimmtudaginn 13. júní halda gestirnir í Hellisheiðarvirkjun og fræðast um jarðhitanýtingu auk þess sem þau skoða eldgosasýninguna á Hvolsvelli. Þaðan er farið að rótum Sólheimajökuls í fylgd skólanema úr Hvolsskóla þar sem sjá má glöggt dæmi um hversu hratt jöklar landsins hafa hopað síðustu áratugina.

Þaðan verður haldið að Landeyjahöfn og siglt til Vestmannaeyja þar sem forsetahjónin heimsækja nokkra staði, þar á meðal Eldheima, fiskiskip og nýja hitaveitu, sem opnuð var formlega í bænum fyrir skömmu, auk þess sem þau ganga með fylgdarliði sínu á Eldfell,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×