Tyrkir tóku heimsmeistarana í kennslustund

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Tyrkir líta ansi vel út
Tyrkir líta ansi vel út vísir/getty
Tyrkir ættu að mæta fullir sjálfstrausts til Íslands á morgun þar sem liðið verður með góðan sigur á heimsmeisturum Frakka í farteskinu en Tyrkir áttu ekki í miklum vandræðum með heimsmeistarana í kvöld þegar liðin mættust í Konya.

Eftir hálftíma leik kom Kaan Ayhan heimamönnum yfir og skömmu síðar tvöfaldaði Cengiz Under forystuna.

Frakkar algjörlega heillum horfnir og hefðu Tyrkir auðveldlega getað bætt við mörkum. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki og 2-0 sigur Tyrkja staðreynd.

Tyrkir eru með fullt hús stiga eftir þrjá leiki í H-riðli og tróna á toppnum með markatöluna 8-0. Þeir heimsækja Laugardalsvöll á þriðjudag á meðan Frakkar fá Albani í heimsókn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira