Íslenski boltinn

Fimleikafélagið: Leikdagur með Vigni

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Vignir mætir í vinnuna hvort sem hann spilar fótbolta um kvöldið eða ekki
Vignir mætir í vinnuna hvort sem hann spilar fótbolta um kvöldið eða ekki mynd/skjáskot
Í nýjasta þætti Fimleikafélagsins, þáttaraðar sem Freyr Árnason gerir um leikmenn FH í Pepsi Max deildinni, er fylgst með Vigni Jóhannessyni, markmanni FH.

Gunnar Nielsen, aðalmarkmaður Hafnfirðinga, meiddist fyrr í sumar og hefur Vignir þurft að stíga upp og standa vaktina í markinu.

Fimleikafélagið fylgdi Vigni eftir á leikdegi þegar FH sótti ÍA heim upp á Akranes, en leikurinn var sá fyrsti hjá Vigni sem aðalmarkvörður FH.

Þáttinn má sjá hér að neðan.

Klippa: Fimleikafélagið: Leikdagur með Vigni





Fleiri fréttir

Sjá meira


×