Tókst ekki að stoppa Man. City í gær og var rekinn í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. maí 2019 08:45 Chris Hughton með Pep Guardiola í gær. Getty/Mike Hewitt
Brighton & Hove Albion rak í dag knattspyrnustjórann sinn Chris Hughton eða aðeins innan við sólarhring eftir lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. Chris Hughton yfirgefur félagið ásamt aðstoðarmönnum sínum Paul Trollope og Paul Nevin. Síðasti leikur Chris Hughton með lið Brighton & Hove Albion var á móti Manchester City í gær.BREAKING: Chris Hughton has been sacked by @OfficialBHAFC. More on Sky Sports News now or here: https://t.co/wNWYNolkawpic.twitter.com/k5SoQIUoKI — Sky Sports News (@SkySportsNews) May 13, 2019Brighton hefði fært Liverpool titilinn á silfurfati með því að taka stig af Manchester City í þessum leik. Brighton komst í 1-0 í leiknum en City svaraði með fjórum mörkum og vann ensku deildina annað árið í röð. Brighton & Hove Albion þakkar Chris Hughton fyrir fjögurra og hálfs árs starf í yfirlýsingu á miðlum sínum. Þar er tekið fram að 3 sigrar í síðustu 23 leikjum hafi kallað á breytingar.Brighton & Hove Albion have confirmed that Chris Hughton has left the club with immediate effect. Hughton’s assistant Paul Trollope and first-team coach Paul Nevin have also left. #BHAFC — Brighton & Hove Albion (@OfficialBHAFC) May 13, 2019Brighton fékk aðeins þrjú stig út úr síðustu níu leikjum sínum en síðustu tveir sigurleikirnir og þeir einu hjá liðinu á árinu 2019 komu á móti Huddersfield Town og Crystal Palace í byrjun mark. Þeir voru nóg til þess að liðið hélt sæti sínu en Brighton endaði í síðasta örugga sæti deildarinnar, tveimur stigum á undan Cardiff City. Chris Hughton tók við liði Brighton & Hove Albion á Gamlársdegi árið 2014. Liðið var þá í ensku b-deildinni. Hann skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning í maí 2016 og ári síðar kom hann liðinu upp í ensku úrvalsdeildina þar sem það hefur verið síðan. Brighton & Hove Albion spilaði 215 leiki undir stjórn Chris Hughton, vann 181 og tapaði 143. Liðið vann 40,6 prósent leikja sinna.
Enski boltinn Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport Dagskráin í dag: KA fer í Hafnarfjörðinn og golfið heldur áfram Sport HM félagsliða „farsælasta keppni í heimi“ samkvæmt Infantino Sport Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Elías Már skrifar undir hjá kínversku liði Sport Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Hákon skoraði tvö í vináttuleik Sport Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport Fleiri fréttir Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Borgaði bara ungmennaliðinu laun og nú má allt aðalliðið fara frítt Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Sjá meira