Íslenski boltinn

Blikar byrjuðu titilvörnina á sigri

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Agla María Albertsdóttir skoraði fyrsta mark Pepsi Max deildarinnar
Agla María Albertsdóttir skoraði fyrsta mark Pepsi Max deildarinnar vísir
Íslandsmeistarar Breiðabliks byrjuðu Pepsi Max-deild kvenna á sigri, en þær höfðu betur gegn ÍBV í opnunarleik deildarinnar á Hásteinsvelli.

Agla María Albertsdóttir skoraði fyrsta mark deildarinnar á 11. mínútu eftir að boltinn féll fyrir fætur hennar í teignum.

Eyjakonur leituðust eftir því að svara fljótt og áttu nokkur góð færi strax í kjölfar marksins. Það voru hins vegar gestirnir úr Kópavogi sem áttu annað markið, það kom á 28. mínútu þegar Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Bæði lið fengu sín færi í seinni hálfleik en ekki komu fleiri mörk í leikinn, Breiðablik siglir aftur heim með þrjú stig í farangurshólfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×