Íslenski boltinn

Pepsi Max-mörkin: Kolrangir rangstöðudómar í Grindavík

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hér má sjá rangstöðudóminn ranga á Rene Joensen.
Hér má sjá rangstöðudóminn ranga á Rene Joensen.
Dómararnir í Pepsi Max-deildinni stóðu sig vel í 1. umferðinni en annar aðstoðardómarinn í leik Grindavíkur og Breiðabliks missteig sig illilega.

Fyrst var Rene Joensen dæmdur rangstæður þegar hann var augljóslega ekki rangstæður. Í því tilviki hefði Grindavík hæglega getað skorað.

Andri Vigfússon dæmdi svo Blikann Thomas Mikkelsen rangstæðan sem einnig var augljóslega ekki réttur dómur. Ef flaggið hefði verið niðri þá hefði Mikkelsen sloppið í gegn.

Sjá má dómaramistökin hér neðan.



Klippa: Pepsi Max-mörkin: Rangir dómar í Grindavík

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×