Leeds tapaði þrátt fyrir að vera manni fleiri í 76 mínútur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. apríl 2019 16:01 Leikmenn Leeds vonsviknir með gang mála. vísir/getty
Leeds United tapaði fyrir Wigan Athletic, 1-2, í ensku B-deildinni í dag þrátt fyrir að komast yfir og vera manni fleiri í 76 mínútur. Leeds er í 3. sæti deildarinnar með 82 stig, jafn mörg og Sheffield United en lakari markatölu. Sheffield United vann 2-0 sigur á Nottingham Forest fyrr í dag. Þegar 14 mínútur voru liðnar af leik Leeds og Wigan fékk Cedric Kipre, varnarmaður gestanna, rautt spjald fyrir að handleika boltann innan vítateigs. Pablo Hernández fór á punktinn en Christian Walton, markvörður Wigan, varði spyrnu hans. Skömmu síðar kom Patrick Bamford Leeds yfir. Gavin Massey jafnaði skömmu fyrir hálfleik og á 62. mínútu skoraði hann sitt annað mark og tryggði Wigan mikilvægan sigur í fallbaráttunni. Liðið er nú fimm stigum frá fallsæti. Aston Villa vann níunda leikinn í röð þegar liðið bar sigurorð af Bolton Wanderers, 0-2. Jack Grealish og Tammy Abraham skoruðu mörk Villa. Birkir Bjarnason sat allan tímann á varamannabekk Villa sem er í 5. sæti deildarinnar. Bolton er hins vegar fallið eftir úrslit dagsins. Jón Daði Böðvarsson er enn fjarri góðu gamni vegna meiðsla og lék ekki með Reading í 1-1 jafntefli við Bristol City á útivelli. Reading er fimm stigum frá fallsæti.
Enski boltinn Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Fleiri fréttir Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Sjá meira