Kom inn á í sínum fyrsta landsleik og tryggði Íslandi sigur á Ítalíu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2019 11:54 Byrjunarlið Íslands. Mynd/KSÍ
Stelpurnar í íslenska sautján ára landsliðinu í fótbolta byrja vel í milliriðli undankeppni EM 2019 en þær unnu í dag heimastúlkur í ítalska landsliðinu. Leikurinn fór fram í bænum San Giuliano Terme á Ítalíu. Íslenska liðið vann leikinn 2-1 en sigurmarkið skoraði Stjörnustelpan Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir á 88. mínútu. Hildigunnur Ýr hafði komið inn á sem varamaður fjórtán mínútum fyrr. Hún var þarna að spila sinn fyrsta opinbera landsleik á ferlinum og það er nú ekki slæmt að skora sigurmark á móti Ítalíu í fyrsta leik. Íslensku stelpurnar komust líka í 1-0 í leiknum en fengu góða aðstoð við það þegar hin ítalska BeatriceBeretta skoraði í eigið mark eftir stoðsendingu frá Maríu Catharinu Ólafsdóttur Gros. Ísland komst yfir á 42. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Ítalir jöfnuðu með marki MicheluGiordano á 52. mínútu og staðan var 1-1 í meira en hálftíma. Ísland mætir næst Danmörku og fer sá leikur fram á sunnudaginn og hefst kl. 10:00 að íslenskum tíma.Byrjunarlið Íslands í leiknum: Cecilía Rán Rúnarsdóttir (Markvörður) Hafrún Rakel Halldórsdóttir Andrea Marý Sigurjónsdóttir Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir Kristjana R. Kristjánsd. Sigurz Arna Eiríksdóttir (Fyrirliði) Ída Marín Hermannsdóttir Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (67., Bryndís Arna Níelsdóttir) Clara Sigurðardóttir (86., Andrea Rut Bjarnadóttir) Þórhildur Þórhallsdóttir (74., Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir) María CatharinaÓlafsd. Gros
Fótbolti Mest lesið Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport Dómur í Maradona-málinu fellur í desember Fótbolti Fleiri fréttir Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Dómur í Maradona-málinu fellur í desember Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Sjá meira