Dramatískt sigurmark Schulz í Amsterdam

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Schulz fagnar marki sínu
Schulz fagnar marki sínu vísir/getty
Þjóðverjar skoruðu sigurmark á síðustu mínútum leiksins við Hollendinga og tryggðu sér þrjú stig í undankeppni EM 2020 í fótbolta.

Leroy Sane kom Þjóðverjum yfir snemma leiks eftir fyrirgjöf frá Nico Schulz inn á teiginn. Stuttu seinna fengu Hollendingar tvö álitleg færi til þess að jafna leikinn en Ryan Babel skaut tvisvar á stuttum tíma beint á Manuel Neuer.

Þjóðverjar refsuðu með frábæru marki frá Serge Gnabry á 34. mínútu og voru komnir í vænlega stöðu í Amsterdam. Staðan í hálfleik var 2-0 fyrir þýsku gestina.

Hollendingar komu sterkir inn í seinni hálfleikinn og skoruðu á 48. mínútu. Matthijs de Ligt skoraði með skalla eftir fyrirgjöf Memphis Depay.

Á 62. mínútu jöfnuðu heimamenn svo leikinn, í þetta skipti sá Depay sjálfur um að skora markið.

Það leit allt út fyrir að leikurinn myndi enda í jafntefli en Nico Schulz varð hetja Þjóðverja er hann skoraði sigurmarkið á síðustu mínútu venjulegs leiktíma.

Lokatölur í Amsterdam 2-3 fyrir Þjóðverja sem byrja undankeppnina á sterkum útisigri.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira