Sjáðu allt sem gerðist á bak við tjöldin þegar Liverpool goðsagnirnar mættu aftur á Anfield Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. mars 2019 12:00 Steven Gerrard gaf skóna sína eftir leik. Vísir/Getty
Liverpool goðsögnin Steven Gerrard minnti á sig um síðustu helgi þegar hann tryggði goðsagnaliði Liverpool 3-2 sigur á goðsögnum AC Milan með glæsilegu marki í góðgerðaleik á Anfield. Í liði AC Milan voru menn eins og Kaka, Andrea Pirlo, Paolo Maldini, Cafu og Alessandro Nesta en með Steven Gerrard í Liverpool spiluðu kappar eins og Jamie Carragher, Dirk Kuyt, Sami Hyypia, Daniel Agger, Michael Owen, Steve McManaman og Robbie Fowler svo einhverjir séu nefndir. Sigurmark Steven Gerrard kom fyrir framan Kop stúkuna sem skemmdi nú ekki upplifunina. Robbie Fowler og Djibril Cisse komu Liverpool í 2-0 en aukaspyrnumark Andrea Pirlo og flott afgreiðsla Giuseppe Pancaro jöfnuðu metin.Stevie's stunner Behind-the-scenes with the Legends Brilliant moments in the tunnel This very unique Inside Anfield is not to be missed — Liverpool FC (@LFC) March 27, 2019Alls voru átta leikmenn í þessu goðsagnaliði Liverpool sem tóku þátt í að tryggja liðinu Meistaradeildarbikarinn eftir dramatískan sigur á AC Milan í Istanbul. Allar tekjur af leiknum fór til LFC Foundation sem eru góðgerðasamtök félagsins. Eins og venjan er með leiki á Anfield á þessu tímabili þá fá mennirnir frá LFCTV að vera með myndvélarnar á lofti á bak við tjöldin. Farið er í gegnum allan leikinn þar sem sjá má sjónarhorn frá öðrum stöðum en vanalega er boðið upp í sjónvarpsútsendingunum. Fyrstir út úr Liverpool-rútunni voru þeir Ian Rush og Sir Kenny Dalglish sem stýrðu liðinu í þessum skemmtilega leik. Við fáum að sjá leikmennina inn í klefa, leikmenn að gefa stuðningsmönnum eiginhandaráritanir og leikmenn að taka myndir af sér og öðrum eflaust fyrir samfélagsmiðlana sína. Svo er farið í gegnum allan leikinn og að lokum sýndar senurnar eftir hann þegar áhorfendur fögnuðu leikmönnum liðanna og þökkuðu þeim fyrir mikla skemmtun. Það var einn kátur stuðningsmaður Liverpool sem fékk skóna hans Steven Gerrard gefins. Spurning hvort að þetta sé síðasta markið sem Steven Gerrard skori á Anfield þannig að þessir skór gætu verið mjög verðmætir fyrir þennan unga pilt. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit Inside Anfield um goðsagnaleik Liverpool og AC Milan.
Enski boltinn Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Fleiri fréttir Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Sjá meira