Fótbolti

Jagiellonia skoraði tvö mörk eftir að Böðvari var skipt inn á og eru komnir í undanúrslit

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Jagiellonia fagna fyrr á tímabilinu.
Leikmenn Jagiellonia fagna fyrr á tímabilinu. vísir/getty
Böðvar Böðvarsson og félagar í Jagiellonia Bialystok eru komnir áfram í pólska bikarnum eftir 2-0 sigur á B-deildarliðinu Odra Opole á útivelli.

Markalaust var í fyrri hálfleik en Böðvar byrjaði á bekknum. Honum var skipt inn á er 72 mínútur voru komnar á klukkuna og það leið ekki langt þangað til fyrsta mark Jagiellonia leit dagsins ljós.







Innan við mínútu síðar voru þeir komnir yfir en markið skoraði Patryk Klimala eftir stoðsendingu. Sama uppskrift var að öðru marki Jagiellonia og lokatölur 2-0.

Með sigrinum eru Jagiellonia því komnir í undanúrslit bikarsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×