Kvika er hryllingssaga um ástina Brynhildur Björnsdóttir skrifar 23. febrúar 2019 09:00 Þóra Hjörleifsdóttir rithöfundur. Fréttablaðið/Eyþór
Kvika Höfundur: Þóra Hjörleifsdóttir Útgefandi: Mál og menning blaðsíður: 134 Andlegt ofbeldi og afleiðingar þess, áhrif klámvæðingar og tvöföld skilaboð í sambandi við ást og ástarsambönd eru megininntak þessarar frumraunar Þóru Hjörleifsdóttur. Við hittum sögukonuna Lilju fyrst þegar hún er í afar varnarlausri stöðu í upphafi ástarsambands sem hún veit þó aldrei hvenær hún má kalla ástarsamband því skilgreiningarvaldið á því er alfarið á hendi þess sem hún er hrifin af. Þá fáum við jafnframt innsýn í fyrra líf hennar, sem verður æ sterkari andstæða við hver hún verður þegar líða tekur á söguna og hún verður smám saman ekki nema skugginn af sjálfri sér. Maðurinn sem hún elskar svona heitt brýtur niður allar varnir hennar og hún endar, eins og hún segir sjálf, eins og laukur sem er búið að taka öll lögin utan af. (bls. 81) Að lokum finnur hún útleið en sagan kennir að ofbeldisferlinu er ekki lokið.xxxSagan er sögð í stuttum köflum og svipmyndum af atvikum sem sögukona lýsir þannig að lesanda verður illt í hjartanu en hún sjálf upplifir að séu það gjald sem þarf að greiða fyrir ástina. Lýsingarnar á því hvernig hún fer ítrekað yfir sín eigin þolmörk til að geðjast manninum sem lengi er ekki tilbúinn til að skilgreina sig sem kærastann hennar eru sársaukafullar aflestrar og vekja upp hugleiðingar um hversu mikil áhrif klámáhorf frá unga aldri hefur á upplifanir ungs fólks af kynlífi. Gerandinn í þessu tilfelli birtist okkur ekki sem góð manneskja en hann er ekki samúðarlaus í sögunni heldur, skýringar á hegðun hans má rekja til erfiðrar barnæsku og eitraðra karlmennskuímynda. Stöðu Lilju er einnig hægt að skýra með því hversu sjálfsagt henni finnst að ganga yfir eigin mörk og ekki síst til hinna lífseigu goðsagna um ástina sem þolir allt og umber allt, ævintýri sem stúlkur drekka í sig, nánast í frumbernsku. Í sögunni er dregin upp sú nöturlega staða sem getur komið upp þegar stelpur sem horfa á rómantískar ástarsögur frá unga aldri og strákar sem horfa á klám, nánast frá sama aldri, hittast og reyna að eiga í samskiptum. Þetta er áhrifamikil og sterk bók, tungutakið þjált og eðlilegt í fyrstu persónu frásögn sem gerir að verkum að við komumst nær sögupersónunni og sjáum hvernig hún minnkar stöðugt undir þrýstingnum sem „ástin“ leggur á hana. Og það sker í hjartað hvernig hún, og allt of margir, skilgreina það sem hún upplifir sem ást. Niðurstaða: Áhrifamikil bók um mörk, bæði mörkin milli andlegs ofbeldis, kláms og ástar og einnig þau mörk sem við berum innra með okkur og eigum lífið undir að virða.
Birtist í Fréttablaðinu Menning Mest lesið Bað fjóra menn um lífssýni en fékk föðurinn óvænt í fangið Lífið Sambandslaus Hamlet Gagnrýni Tjáir sig um auglýsinguna umdeildu og stuðning Trump Lífið Keyptu 230 fermetra einbýlishús á Seltjarnarnesi Lífið Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Lífið Varð næstum fyrir bíl á Formúlunni Lífið „Hann var bara draumur“ Lífið Djúsí kjúklingasalat á naanbrauði Matur Stjörnupar og hafnfirsk systkini sáu stærsta harmleik sögunnar Lífið Rjóminn gleymdist en guð var að fylgjast með Lífið Fleiri fréttir Floppin í haust og sjónvarpslaus sjónvarpsverðlaun Fyrrverandi ráðherra Dana: „Þið voruð aldrei nýlenda“ Samkeppnin í New York minnti á X-Factor keppni Hrekkjavökubúningar sem er best að forðast Magnús Karel og Inga Lára hlutu menningarviðurkenningu Árborgar Cecilie tekur við af Auði Þórdís Dröfn hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Katrín og Ragnar snúa aftur með nýja bók Fullkominn vettvangur til að verja vetrarfríinu Hver er uppáhaldsbókin þín eftir Halldór Laxness? Ný gjaldfrjáls íslensk-ensk veforðabók opnuð Ryan Eyford handhafi Vigdísarverðlaunanna 2025 Víkingur Heiðar hlýtur tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs Lína orðin að „peningasjúkum TikTok-trúði“ eða sjálfsögð markaðssetning? Páll Baldvin fer fram gegn tillögu kjörnefndar Menningarvaktin: Ráðning óperustjóra jafn spennandi og þjálfara KR Trylltust við taktinn í barokkbúningum László Krasznahorkai hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Léleg“ hönnun gervigreindar reyndist mannanna verk Áhersla á hæglæti á Sequences Fögnuðu Heimsins besta degi í helvíti Markmiðið að græða ekkert og „helst tapa pening“ Heiður að fá að segja sögu kvennanna sem ruddu brautina „Kunna ekki að reikna, kunna svo ekki að skammast sín“ „Stefán er að hengja bakara fyrir að vera ekki smiður“ Sjá meira