Valdi Katar frekar en ensku úrvalsdeildina Arnar Geir Halldórsson skrifar 26. janúar 2019 13:00 Mehdi Benatia. vísir/getty
Marokkóski varnarmaðurinn Medhi Benatia er að ganga til liðs við katarska meistaraliðið Al-Duhail frá ítalska stórveldinu Juventus og það þrátt fyrir áhuga enska úrvalsdeildarliða á borð við Arsenal og Manchester United. Rui Faria, fyrrum aðstoðarmaður Jose Mourinho hjá Man Utd og Chelsea, tók nýverið við stjórnartaumunum hjá Al-Duhail en liðið hefur unnið úrvalsdeildina í Katar sex sinnum frá árinu 2010. Benatia er fæddur og uppalinn í Frakklandi og hefur leikið með Roma, Udinese og Bayern Munchen en þessi 31 árs gamli miðvörður hefur nú ákveðið að yfirgefa Evrópuboltann. „Benatia óskaði eftir því að fá að fara. Það þjónar engum tilgangi að halda leikmanni sem vill ekki vera hérna. Benatia átti góð ár hjá Juventus og mér þykir sárt að hann sé að fara en ég get ekki komist inn í hausinn á honum og breytt hans skoðun. Hann tekur þessa ákvörðun og þar við situr,“ sagði Max Allegri, stjóri Juventus. Juventus hefur þegar náð í leikmann til að fylla skarð Benatia því Martin Caceres er kominn til ítölsku meistaranna frá Lazio en þetta er í þriðja sinn á ferlinum sem hann gengur til liðs við Juventus. Hjá Al-Duhail hittir Benatia fyrir liðsfélaga sinn hjá marokkóska landsliðinu, Youssef El-Arabi en hann hefur skorað 53 mörk í 41 leik í Katar síðan hann kom frá Granada á Spáni.
Ítalski boltinn Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Sjá meira