Auglýstu sigurpartýið á stóra skjánum á vellinum fyrir úrslitaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. maí 2019 13:30 Lee Cattermole fylgist svekktur með úr fjarlægð á meðan Patrick Bauer og Jason Pearce, leikmenn Charlton, fagna sæti í b-deildinni. Getty/Charlie Crowhurst
Síðustu tvö ár hafa verið afar súr fyrir stuðningsmönnum enska félagsins Sunderland sem spilaði meðal þeirra bestu frá 2007 til 2017 en dúsar nú í þriðju hæstu deild Englands. Sunderland er nefnilega áfram C-deildarlið á Englandi eftir tap á móti Charlton um helgina í hreinum úrslitaleik um sæti í ensku b-deildinni. Sunderland var í ensku úrvalsdeildinni fyrir aðeins tveimur árum (2016-17) en hafði fallið niður um deild tvö ár í röð. Það bjuggust flestir við því að Sunderland kæmist strax aftur upp í ensku b-deildina en liðið skreið inn í úrslitakeppnina eftir aðeins einn sigur í síðustu sjö leikjum tímabilsins. Sunderland komst síðan í úrslitaleikinn um síðasta lausa sætið eftir að hafa slegið út Portsmouth. Sunderland komst í 1-0 eftir aðeins fimm mínútur í úrslitaleiknum á móti Charlton Athletic og allt leit vel út. Forráðamenn Sunderland höfðu hins vegar storkað örlögunum fyrir úrslitaleikinn þegar þeir auglýstu óvart sigurpartýið á stóra skjánum á vellinum. Á skiltinu kom fram að Sunderland ætlaði að fagna sætinu í b-deildinni með stuðningsmönnum sínum daginn eftir úrslitaleikinn. Allt fór það þó á annan veg. Charlton jafnaði metin og tryggði sér síðan sigur og sæti í ensku b-deildinni með sigurmarki í uppbótatíma leiksins. Sunderland menn sátu eftir með sárt ennið. Chronicle sagði frá þessum mistökum með sigurpartýið en það var allt planað á mánudeginum og áttu leikmenn og Jack Ross knattspyrnustjóri að mæta til að fagna sætinu með stuðningsmönnunum.
Enski boltinn Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Sjá meira