Gary Martin verður áfram í Vestmannaeyjum og spilar með ÍBV í Inkasso-deildinni á næstu leiktíð.
Englendingurinn hefur framlengt samning sinn við félagið en hann gekk í raðir félagsins um mitt sumar eftir að hafa komist að starfslokum við Val.
ÍBV er fimmta félagið sem Englendingurinn spilar með á Íslandi en áður hafði hann spilað með ÍA, KR, Víkingi Reykjavík og Val.
Við sama tilefni skrifaði markvörðurinn Halldór Páll Geirsson undir þriggja ára samning við Eyjamenn en markvörðurinn er uppalinn hjá félaginu.
ÍBV er fallið niður í Inkasso-deild karla.
Gary framlengir við ÍBV og leikur með liðinu í Inkasso-deildinni
Anton Ingi Leifsson skrifar

Mest lesið


„Draumar rætast“
Fótbolti


Benedikt hættur með Tindastól
Körfubolti

Stúkan: „Bera virðingu fyrir leiknum og andstæðingnum“
Íslenski boltinn





Walker í vandræðum og verður ekki áfram hjá City
Enski boltinn