Fyrrverandi eigandi Villa fær tæpa fimm milljarða ef liðið kemst upp í dag Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. maí 2019 12:00 Lerner var eigandi Aston Villa á árunum 2006-16. vísir/getty
Hjarta Randys Lerner, fyrrverandi eiganda Aston Villa, slær væntanlega hratt á meðan leik liðsins gegn Derby County í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni stendur í dag. Lerner fær nefnilega væna summu ef Villa vinnur á Wembley og kemst upp í ensku úrvalsdeildina. Þegar Lerner seldi Villa til Tony Xia 2016 setti hann þann viðauka með að hann fengi 30 milljónir punda ef liðið færi upp í ensku úrvalsdeildina innan þriggja ára. Daily Mail greinir frá. Ekki nóg með það heldur fær Lerner tíu milljónir punda í sinn hlut ef Villa heldur sér uppi í tvö tímabil. Bandaríkjamaðurinn gæti því fengið 40 milljónir punda, eða rúma sex milljarða íslenskra króna, ef allt gengur að óskum. Mikið er undir í úrslitaleiknum á Wembley; ekki bara úrvalsdeildarsæti heldur 170 milljónir punda. Það er meira en lið fá fyrir að vinna Meistaradeild Evrópu og Ofurskálina. Enskir fjölmiðlar greina einnig frá því að ef Villa fari upp skipti leikmenn liðsins með sér tíu milljóna punda bónus. Ef Derby vinnur skipta leikmennirnir með sér sex milljónum punda. Villa lék síðast í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2015-16. Derby var síðast uppi tímabilið 2007-08. Þá fékk liðið aðeins ellefu stig og féll með stæl. Ekkert lið hefur fengið færri stig á einu tímabili í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Leikur Aston Villa og Derby County hefst klukkan 14:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Íslenski boltinn Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Enski boltinn Fleiri fréttir Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjá meira