Greint var frá því á laugardaginn að Sheeran hafi flutt með sér 55 gáma fulla af græjum fyrir tónleikana sem vógu meira en 1.500 tonn. Til samanburðar flutti Justin Timberlake tífalt færri gáma með sér á tónleikana sem hann hélt árið 2014 og flutti Justin Bieber fimmfalt færri gáma með sér árið 2016.
Sheeran flytur inn eigið svið fyrir tónleikana sem var sérhannað fyrir hann fyrir þremur árum síðan. „Það er notað á svona 60 til 70 þúsund manna tónleikum þannig að þetta hefur ekki sést áður á Íslandi. Sviðið er 200 tonn og 50 metra breitt og 700 fermetrar í heildina,“ segir Ísleifur í samtali við fréttastofu Vísis.
Ísleifur segir sviðið sérstakt að því leiti að það sé byggt út á við. Ekki sé „hol“ í sviðinu eins og venjan er.

Sviðið er þannig upp sett að allir eiga að sjá Sheeran jafn vel. „Hann er náttúrulega bara einn á sviðinu allan tímann. Það er engin hljómsveit eða neitt en tónlistin er öll live. Hann spilar sjálfur á öll hljóðfærin á sviðinu og tekur þau upp í loop-i þannig að maður fylgist með tónlistinni verða til.“
„Hann heldur þarna mörg þúsund manns í greipum sér, hann er svo heillandi á sviðinu.“
Ed Sheeran eftirhermur í salnum
Ísleifur segir ekki nákvæmt hve margir komi á tónleikana en búast megi við að hátt í 50 þúsund manns mæti. „Það er alveg 15% af þjóðinni. Ætli við séum ekki að fara að slá annað höfðatöluheimsmet í mætingu á þessa tónleika?“Ed Sheeran-búð var opnuð í Kringlunni um miðjan júlí þar sem Ed Sheeran-varningur er seldur auk þess sem miðar eru afhentir þar. Þar er þó ekki aðeins hægt að fá hinn klassíska tónleikavarning, eins og peysur og húfur heldur eru þar seldar Ed Sheeran-hárkollur og -gleraugu.
„Þetta er mjög vinsæll varningur þannig að það verða líklegast þónokkrar Ed Sheeran eftirhermur í salnum,“ segir Ísleifur.
Hópur frá Senu fór út til Lissabon fyrr í sumar til að fara á tónleika hjá Sheeran og hitta fólk sem stæði að tónleikunum. Ísleifur segir Sheeran hafa verið einstaklega viðkunnanlegan. „Hann var þarna labbandi um baksviðs eins og hver annar maður. Svo vorum við kynntir fyrir honum og hann varð rosalega spenntur þegar hann heyrði að við værum frá Íslandi,“ segir Ísleifur.
„Hann sagðist hlakka lang mest að koma til Íslands. Hann bað okkur líka að redda fyrir sig áritaðri landsliðstreyju, sem við erum að vinna í.“
Samkvæmt heimildum fréttastofu mun Ed Sheeran koma hingað til lands nokkrum dögum fyrir tónleikana og njóta þess sem landið hefur upp á að bjóða.