Óska eftir að bærinn greiði fyrir vinnu erlendra leikmanna 3. mars 2018 08:45 Fjársveltir Mosfellingar stefna hátt á komandi tímabili. Vísir/Ernir
Fótbolti Landsbankinn og Loftorka sögðu nýverið upp samningi við meistaraflokk Aftureldingar í fótbolta en samkvæmt bréfi flokksins til bæjarins kemur fram að samningurinn hafi verið metinn á 4,7 milljónir. Fer deildin fram á að Mosfellsbær komi til móts við hana og auki framlag sitt um 700 þúsund krónur sem verði þannig 1,2 milljónir. „Þannig er mál með vexti að undanfarin ár höfum við fengið hlutastarf á Tungubökkum fyrir leikmenn meistaraflokks og fyrir þessa vinnu hefur bærinn greitt 600 þúsund,“ segir meðal annars í bréfinu. Félagið fékk að bæta við einum leikmanni og fylgdi aukafjárveiting upp á 100 þúsund krónur. Ætlar Afturelding að láta erlenda leikmenn sína sjá um sláttinn. Ásbjörn Jónsson, formaður meistaraflokksráðs, segir að félagið hafi verið með samkomulag við bæjaryfirvöld um eitt stöðugildi þar sem leikmaður hefur séð um að slá og merkja velli og annað tilfallandi. „Við höfum fengið pening frá bænum fyrir eitt stöðugildi og við erum að biðja núna um annað.“ Málið verður tekið fyrir innan bæjarráðs. Afturelding var komin með tvo leikmenn en annar þurfti að hætta við af persónulegum ástæðum og hinn hefur verið settur í smá bið. „Það er ódýrara að fá Spánverja og útvega honum íbúð og smá starf heldur en að fá íslenskan leikmann í sama gæðaflokki. Þá er ég að tala um leikmann sem er hálfgerður svindlkall að gæðum fyrir aðra deildina. Svoleiðis íslenskur leikmaður er mjög dýr og þeir biðja um mikla peninga.“ Hann segir að þótt staðan sé erfið þá sé stefnan klárlega að fara upp um deild. „Menn eru að berjast. Við drögum úr kostnaði ef við náum ekki að fylla í gatið. Auðvitað þurfum við að ná í 20 styrktaraðila núna í staðinn fyrir þessa tvo. En stefnan er alltaf að fara upp.“ – bb
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Handbolti Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Íslenski boltinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Fótbolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti „Þetta er smá spooky“ Körfubolti Stofnandi LIV segir skilið við mótaröðina Sport Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Íslenski boltinn Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Gætu endað í þyrlu til Eyja Grindavík/Njarðvík - Þór/KA | Skástrikin mætast Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Besta sætið: Vítaspyrnuvæl og stórleikir um helgina Eiður og Arnór spili ekki á laugardaginn Gríðarlegt áfall ÍBV fyrir úrslitin Klúðraði þremur vítum og var síðan rændur sigurmarki Liðsfélagi Stefáns og Alfons kveikjan að risastóru dómsmáli Sjáðu fyrirliðann Tryggva taka við Evrópubikarnum Ronaldo lenti í hörkurifrildi í toppslagnum Stofnandi LIV segir skilið við mótaröðina „Þetta er smá spooky“ Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Mainoo áfram í Manchester næstu árin Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? „Langir fætur hjálpa við að sparka í hausinn á þeim“ Írönum vísað úr landi fyrir ársþing FIFA Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Tvíburar héldu sínum liðum á lífi Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Dagskráin í dag: Mikil spenna í Grindavík Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Sjá meira