Bandaríkjaforseti hefur ítrekað baunað á Jeff Sessions, dómsmálaráðherra sinn, undanfarin misseri. Trump hefur verið ósáttur við Sessions allt frá því að sá síðarnefndi lýsti sig vanhæfan til að hafa umsjón með Rússarannsókninni svonefndu sem beinist að því hvort að framboð Trump hafi átt í samráði við útsendara rússneskra stjórnvalda í fyrra.
Nýjasta tíst forsetans þar sem hann beinir spjótum sínum enn og aftur að Sessions hefur hins vegar vakið sérstaka athygli. Þar fer Trump kaldhæðnislegum orðum um Sessions í tengslum við ákærur á hendur tveimur þingmönnum repúblikana sem voru einir fyrstu stuðningsmenn Trump á þingi þegar hann bauð sig fyrst fram.
„Tvær langvarandi, Obama-tíðar, rannsóknir á tveimur mjög vinsælum þingmönnum repúblikana voru leiddar til vel auglýstra ákæra rétt fyrir þingkosningarnar af dómsmálaráðherra Jeffs Sessions. Tveir auðveldir sigrar eru nú í hættu vegna þess að það er ekki nægur tími. Vel gert Jeff......“ tísti Trump.
Two long running, Obama era, investigations of two very popular Republican Congressmen were brought to a well publicized charge, just ahead of the Mid-Terms, by the Jeff Sessions Justice Department. Two easy wins now in doubt because there is not enough time. Good job Jeff......
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) September 3, 2018
Forsenda tísts Trump virtist vera að Sessions hefði átt að beita sér til þess að stöðva rannsóknir og ákærur sem kæmu sér illa fyrir forsetann og Repúblikanaflokkinn í aðdraganda þingkosninga sem fara fram í nóvember.
Reuters-fréttastofan segir að talskona dómsmálaráðuneytisins hafi beðist undan því að tjá sig um ummæli forsetans.
Ætti frekar að verja stjórnarskrá og hlutleysi réttarkerfisins
Demókratar gagnrýndu ummæli forsetans og átöldu virðingarleysi hans fyrir lögum og reglum, þar á meðal Brian Schatz, öldungadeildarþingmaður flokksins.„Hann felur ekki hvernig hann lítur á lögin, löggæslu, réttlætið. Í hans heimi sverja þeir honum hollustueið, ekki stjórnarskránni eða lögunum,“ tísti Schatz.
Gagnrýnin var þó ekki bundin við demókrata. Ben Sasse, öldungadeildarþingmaður repúblikana og fulltrúi í dómsmálanefnd öldungadeildarinnar, sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hann brást við tísti forsetans.
„Bandaríkin eru ekki eitthvað bananalýðveldi með tveggja laga dómskerfi, eitt fyrir flokkinn í meirihluta og annað fyrir flokkinn í minnihluta. Þessir tveir menn hafa verið ákærðir fyrir glæpi á grundvelli sannana, ekki vegna þess hver var forseti þegar rannsóknirnar hófust,“ sagði í yfirlýsingunni.
Ráðlagði Sasse forsetanum að verja stjórnarskrá landsins og verja hlutleysi réttarkerfisins í stað þess að tjá sig um rannsóknir og ákærur sem enn séu til meðferðar í því.
GOP Sen. Ben Sasse suggests Trump's tweets about Sessions hurting GOP congressmen akin to a “banana republic” pic.twitter.com/mVEQRzGlAo
— Aaron Blake (@AaronBlake) September 3, 2018