Íslenski boltinn

Hildur Antons snýr til baka úr láni og klárar tímabilið með Blikum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Hildur Antonsdóttir komin aftur í grænt
Hildur Antonsdóttir komin aftur í grænt Vísir/Anton Brink
Hildur Antonsdóttir mun klára tímabilið í Pepsi-deild kvenna með Breiðabliki, þar sem hún hóf það en hún var lánuð til HK/Víkings þegar skammt var liðið á tímabilið.

Hildur lék fyrstu þrjár umferðir Pepsi-deildarinnar með Blikum en var svo lánuð til nýliða HK/Víkings á lokadegi félagaskiptagluggans í maí.

Hún hefur verið í lykilhlutverki hjá HK/Víkingi og spilað alla leiki, eða alls átta leiki í Pepsi deildinni og skorað í þeim fimm mörk en HK/Víkingur er í 5.sæti deildarinnar.

Um er að ræða kærkominn liðsstyrk fyrir Blikakonur sem eru í harðri baráttu við Þór/KA um Íslandsmeistaratitilinn en nokkrir sterkir leikmenn munu yfirgefa félagið á næstu dögum þar sem þær Andrea Rán Snæ­feld Hauks­dótt­ir, Esther Rós Arn­ars­dótt­ir, Fann­ey Ein­ars­dótt­ir, Guðrún Gyða Haralz og Selma Sól Magnús­dótt­ir halda til náms í Bandaríkjunum. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×