Fellaini skaut United í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar

Anton Ingi Leifsson skrifar
United fagna marki Fellaini.
United fagna marki Fellaini. vísir/getty
Marouane Fellaini tryggði Manchester United sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar með marki í uppbótartíma gegn Young Boys í kvöld.

United sótti án afláts í leiknum og átti sautján skot í átt að marki Young Boys en gestirnir frá Sviss gerðu vel og náðu að halda United-mönnum niðri lengi vel.

David de Gea markvörður United þurfti þó einnig að taka á sínum stóra sínum er hann átti frábæra markvörslu en sigurmarkið var United og það kom í uppbótartíma.

Eftir langan bolta inn í teiginn datt boltinn fyrir Belgann Marouane Fellaini sem náði að snúa varnarmann Young Boys af sér og setja hann í gefnum klofið á honum í fjærhornið. Lokatölur 1-0.

Með sigrinum er United komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar en liðið er með tólf stig í öðru sætinu. Juventus er á toppnum me ðtólf stig en United mætir Valencia í síðustu umferðinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira