Gylfi mætir Tottenham á Þorláksmessu og meistaraefnin mætast á nýju ári Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 13. október 2018 11:45 Það snjóaði þegar Everton og Liverpool mættust í desember í fyrra. Liðin eigast aftur við í jólamánuðinum á þessu tímabili vísir/getty
Það verður Íslendingaslagur á annan dag jóla í ensku úrvalsdeildinni og Gylfi Þór Sigurðsson spilar á Þorláksmessu. Leikjadagskráin yfir jólahátíðina hefur verið staðfest. Atvinnumenn í fótbolta í efstu deildum Englands fá lítinn frítíma yfir jólahátíðirnar, það er sá tími þegar leikið er hvað mest. Desembermánuður byrjar af krafti með stórleikjum og nágrannaslögum Liverpool og Everton og Arsenal og Tottenham sunnudaginn 2. desember. Arsenal á annan stórleik þremur dögum seinna þegar Skytturnar mæta á Old Trafford. 16. desember eigast erkifjendurnir í Liverpool og Manchester United við á Anfield. Jóhann Berg Guðmundsson og Aron Einar Gunnarsson mæta báðir stórliðum 22. desember, Burnley sækir Arsenal heim og Cardiff tekur á móti Manchester United. Einn leikur fer fram sunnudaginn 23. desember, á Þorláksmessu, það er viðureign Everton og Tottenham á Goodison Park. Annan dag jóla verður Íslendingaslagur á Turf Moor þegar Burnley og Everton mætast. Alls fara níu leikir fram 26. desember. Hádegisleikur Fulham og Wolves, sex leikir klukkan 15:00 þar sem bæði Manchester-liðin, Liverpool og Tottenham verða í eldlínunni, síðdegisleikur Brighton og Arsenal og óhefðbundinn kvöldleikur Watford og Chelsea. Ekki verður leikið á gamlársdag en heil umferð fer fram helgina 29. - 30. desember þar sem leikur Liverpool og Arsenal er stórleikur umferðarinnar. Á nýársdag mæta Gylfi og félagar Leicester og Cardiff tekur á móti Tottenham. Stærsti leikur hátíðatímabilsins fer fram á nýju ári. Toppliðin, sem þó verða kannski ekki toppliðin þegar kemur að þessum leikjum, Manchester City og Liverpool eigast við fimmtudaginn 3. janúar 2019.Alla leikjadagskrá ensku úrvalsdeildarinnar má sjá hér
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Handbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira