Salah með sigurmark Liverpool gegn Brighton

Dagur Lárusson skrifar
Salah fagnar.
Salah fagnar. Vísir/Getty
Mohamed Salah skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri Liverpool á Brighton á Anfield í kvöld.

 

Liverpool var ekki búið að fá á sig mark fyrir leikinn og unnu Crystal Palace 2-0 í síðasta leik sínum á meðan Brighton vann frækinn sigur á Man Utd 3-2.

 

Liðsmenn Brighton mættu ákveðnir til leiks á Anfield og gáfu ekki mikið af færum á sér í fyrri hálfleiknum. Það var þó á 23. mínútu þar sem James Milner vann boltann ofarlega á vallarhelming Brighton og sendi boltann inn fyrir á Mohamed Salah sem afgreiddi boltann glæsilega í netið.

 

Í seinni hálfleiknum færðu liðsmenn Brighton sig aðeins framar á völlinn og tóku fleiri áhættur í leik sínum. Þetta gerði það að verkum að liðið byrjaði að spila betri sóknarleik á meðan það dróg heldur af sóknarleik Liverpool.

 

Liverpool náði hinsegar að halda út og er þess vegna með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir í ensku úrvalsdeildinni og á ennþá eftir að fá á sig mark.

 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira