Fábregas reyndi að hugga brjálaðan Morata eftir að hann var tekinn af velli | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. apríl 2018 14:00 Álvaro Morata gengur svekktur af velli. vísir/getty
Álvaro Morata, leikmaður Chelsea, var brjálaður þegar að hann var tekinn af velli í 2-1 sigrinum á móti Burnley í gærkvöldi en hann var þó meira svekktur út í sjálfan sig en aðra. Spænski framherjinn hefur aðeins skorað eitt mark síðan á öðrum degi jóla og er í heildina búinn að skora ellefu mörk í ensku úrvalsdeildinni. Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelea, byrjaði með Morata og Oliver Giroud saman í framlínunni en samkvæmt Sky Sports er þetta í fyrsta sinn í sjö ár sem Chelsea byrjar með tvo framherja saman í leik.Enn eina ferðina gekk Morata ekkert að skora og klúðraði hann einu mjög góðu færi. Conte tók hann af velli á 71. mínútu fyrir Eden Hazard og Spánverjanum var ekki skemmt. Hann lét gremju sína í ljós um leið og hann var kominn út af vellinum og á varamannabekknum var hann verulega pirraður. Cesc Fábregas, samherji hans og samlandi, reyndi með veikum mætti að hugga Morata sem var virkilega pirraður. Chelsea mætir Southampton í undanúrslitum enska bikarsins á sunnudaginn og telur Frank Sinclair, sparkspekingur Sky Sports, að þessi frammistaða Morata hafi kostað hann byrjunarliðssæti í leiknum. „Ég tel að leikmenn eins og Willian og Hazard verði að snúa aftur í byrjunarliðið og þá þarf Conte að velja á milli Giroud eða Morata. Ég myndi alltaf velja Giroud eins og staðan er núna,“ segir Sinclair. Myndband af pirringi Morata má sjá hér að neðan.
Enski boltinn Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Náði að plata Óskar Örn Sport Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Sjá meira