Víkingar finna markvörð tveimur dögum fyrir fyrsta leik Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. apríl 2018 15:20 Aris á skutlunni. mynd/helsingör
Pepsi-deildarlið Víkings er loks búið að finna sér nýjan aðalmarkvörð en liðið hefur fengið danska markvörðinn Aris Vaporakis að láni frá danska 1. deildar liðinu Helsingör. Varporakis er 23 ára gamall og hefur verið varamarkvörður danska liðsins. Hann sér nú fram á að fá spiltíma og leiki í efstu deild undir belti. „Ég fæ að spila hjá Víkingi og þar með tækifæri til að þroskast jafnt innan sem utan vallar. Það verður spennandi að reyna fyrir sér í öðru landi og í annarri menningu,“ segir Vaporakis við heimasíðu Helsingör. Víkingar hafa leitað logandi ljósi að markverði undanfarnar vikur og hafa nokkrir runnið þeim úr greipum á síðustu stundu en þeir setja nú traust sitt þennan 23 ára gamla Dana. Róbert Örn Óskarsson verður ekki með Víkingi í sumar en hjá félaginu er Senegalinn Morice sem hefur ekki enn fengið atvinnuleyfi. Víkingur mætir Fylki í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar á laugardaginn á heimavelli og eru nú komnir með markvörð á síðustu stundu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Enski boltinn Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Enski boltinn Óli Óla: Við getum alveg eins hrokkið upp af á morgun Körfubolti Uppgjör: Grindavík - Keflavík 104-92 | Ekkert stöðvar Grindvíkinga Körfubolti „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti Kristian fiskaði rautt og fékk svo rautt Fótbolti Bjarni með tíu og KA áfram í toppbaráttu Handbolti Uppgjörið: Ármann - Tindastóll 77-110 | Tindastóll of stór biti fyrir Ármann Körfubolti Glódís leiðir Bayern áfram í hárrétta átt Fótbolti Fá ekki hollensku stjörnuna til að yfirgefa rándýra hótelsvítu Fótbolti Fleiri fréttir Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Sjá meira