Ísrael endurskoðar flóttamannaáætlun sem kynnt var í dag Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 2. apríl 2018 23:32 Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels. Vísir/EPA
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels hefur ákveðið að endurskoða samning við Sameinuðu þjóðirnar um að þúsundir afrískra flóttamanna sem dvelji nú í Tel Aviv fái hæli í vestrænum ríkjum. Um er að ræða rúmlega 16 þúsund manns sem flestir koma frá Súdan og Erítreu. Til stóð að veita fólkinu hæli meðal annars í Kanada, Ítalíu og Þýskalandi samkvæmt fimm ára áætlun sem kynnt var í gærmorgun. Á móti hverjum flóttamanni sem fengi hæli annars staðar átti Ísrael að veita einum flóttamanni tímabundið dvalarleyfi í landinu. Netanyahu setti þau áform þó í biðstöðu í gærkvöldi, einungis nokkrum klukkustundum eftir að hann tilkynnti áætlunina, og verða flóttamennirnir áfram í Ísrael í bili. Áður en samningar náðust á milli yfirvalda í Ísrael og flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna stóð til að vísa fólkinu úr landi til þriðja aðila í Afríku.Netanyahu sagðist þurfa að endurmeta samninginn eftir að hafa heyrt sjónarmið Ísraelsmanna. Hafði hann meðal annars hlotið gagnrýni frá valdamiklum stjórnmálamönnum ísinni eigin ríkisstjórn. Þannig sagðist Ayelet Shaked, dómsmálaráðherra Ísraels, ekki hafa heyrt af samningnum áður en hann var samþykktur fyrr í dag. Þá sagðist Miri Regev, menningarmálaráðherra landsins, hafa áhyggjur af stöðu lands og þjóðar ef flóttamönnum væri leyft að vera áfram í Ísrael.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Sjá meira