Mbappe, Neymar og Cavani hættulegastir í Evrópu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 17. janúar 2018 12:30 Þessir þrír hafa verið óstöðvandi í vetur vísir/getty
Edinson Cavani, Neymar og Kylian Mbappe eru besta sóknarþrenning Evrópu, en Bleacher Report hefur tekið saman gögn um alla sóknarmenn í fimm stærstu deildum Evrópu og Meistaradeildinni til þess að skoða hverjir eru hættulegastir fram á við. Sóknarþrenning Paris Saint-Germain á sín á milli 38 deildarmörk á tímabilinu og 20 stoðsendingar. „Það er fullkomið jafnvægi á milli þeirra. Cavani er alltaf til staðar í fremstu línu og þeirra aðal markaskorari. Neymar er konungurinn í því að hlaupa upp völlinn og getur galdrað eitthvað sérstakt fram úr erminni. Mbappe er ótrúlega hraður og leiðir skyndisóknir af krafti. Saman eru þeir með ótrúlegt eyðileggingarvald,“ segir í umsögn Bleacher Report. Næstir á eftir PSG þrenningunni eru þeir Sergio Aguero, Raheem Sterling og Leroy Sane sem hafa siglt Manchester City á topp ensku úrvalsdeildarinnar. Þeir þrír eiga samtals 34 mörk og 18 stoðsendingar. Lionel Messi, Luis Suarez og Paulinho hjá Barcelona eru í þriðja sæti. Framherjar Liverpool og Tottenham fylgja í fjórða og fimmta sæti. Liðið sem situr í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar, Manchester United, er hins vegar aðeins í níunda sæti. Spánar- og Evrópumeistarar Real Madrid eru í 19. sæti listans með 10 mörk og 9 stoðsendingar frá Cristiano Ronaldo, Karim Benzema og Isco. Þeir mega teljast heppnir að í samantektinni var einnig tekið mið af Meistaradeild Evrópu, því annars kæmist sóknarlína Real Madrid ekki á listann. Þeir þrír leikmenn sem mestan spilatíma hafa fengið í framlínunni voru valdir í samsetningar þrennanna, í þeim tilfellum þar sem 4-4-2 uppstillingin er nærri eingöngu notuð var árangursríkasti miðjumaðurinn tekinn með. Tölfræðin á bara við um deildarmörk og er ekki aðal viðmið niðurröðunarinnar.Hættulegustu sóknarþrenningar Evrópu 1 Edinson Cavani, Neymar, Kylian Mbappe (PSG) - 38 mörk, 20 stoðsendingar 2 Sergio Aguero, Raheem Sterling, Leroy Sane (Manchester City) - 34 mörk, 18 stoðsendingar 3 Lionel Messi, Luis Suarez, Paulinho (Barcelona) - 38 mörk, 12 stoðsendingar 4 Roberto Firmino, Mohamed Salah, Sadio Mane (Liverpool) - 34 mörk, 15 stoðsendingar 5 Harry Kane, Christian Eriksen, Heung-Min Son (Tottenham) - 34 mörk, 11 stoðsendingar 6 Mauro ICardi, Ivan Perisic, Antonio Candreva (Inter Milan) - 25 mörk, 15 stoðsendingar 7 Ciro Immobile, Luis Alberto, Sergej Milinkovic-Savic (Lazio) - 31 mark, 16 stoðsendingar 8 Simone Zaza, Rodrigo, Goncalo Guedes (Valencia) - 23 mark, 10 stoðsendingar 9 Romelu Lukaku, Anthony Martial, Jesse Lingard (Manchester United) - 26 mörk, 12 stoðsendingar 10 Gonzalo Higuain, Paulo Dybala, Mario Mandzukic (Juventus) - 25 mörk, 8 stoðsendingar 11 Mariano, Nabil Fekir, Memphis Depay (Lyon) - 35 mörk, 12 stoðsendingar 12 Dries Mertens, Lorenzo Insigne, Jose Callejon (Napólí) - 21 mark, 13 stoðsendingar 13 Vincent Aboubakar, Moussa Marega, Yacine Brahimi (Porto) - 33 mark, 11 stoðsendingar 14 Alvaro Morata, Eden Hazard, Willian (Chelsea) - 19 mörk, 11 stoðsendingar 15 Robert Lewandowski, Thomas Muller, Kingsley Coman (Bayern Munich) - 20 mörk, 7 stoðsendingar 16 Iago Aspas, Maxi Gomez, Pione Sisto (Celta Vigo) - 23 mörk, 15 stoðsendingar 17 Kevin Volland, Julian Brandt, Leon Bailey (Bayer Leverkusen) - 20 mörk, 7 stoðsendingar 18 Alexandre Lacazette, Alexis Sanchez, Mesut Özil (Arsenal) - 19 mörk, 11 stoðsendingar 19 Cristiano Ronaldo, Karim Benzema, Isco (Real Madrid) - 10 mörk, 9 stoðsendingar 20 Radamel Falcao, Thomas Lemar, Balde Keita (Mónakó) - 22 mörk, 7 stoðsendingar
Fótbolti Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Enski boltinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Fótbolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Fleiri fréttir Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Ungu strákarnir okkar slást við Grikki um sæti á EM Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Sjá meira