Gylfi var hetja Everton en kemst ekki í liðið hjá BBC Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. nóvember 2018 11:30 Gylfi Þór Sigurðsson. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Everton dýrmætan sigur í Íslendingaslag í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Hetjudáðir hans heilluðu þó ekki alla. Knattspyrnustjóri Everton hrósaði íslenska landsliðsmanninum mikið eftir leikinn og margir eru á því að hann hafi átt skilið að vera í úrvalsliði helgarinnar. Sérfræðingur BBC er ekki á sama máli en Garth Crooks setur saman lið helgarinnar fyrir breska ríkissjónvarpið. Gylfi Þór Sigurðsson missti af landsleikjum Íslands vegna meiðsla en náði sér fyrir leikinn á móti Cardiff City á laugardaginn þar sem hann skoraði eina mark leiksins eins og sjá má hér fyrir neðan.Klippa: Goal G Sigurdsson (59) Everton 1 - 0 Cardiff Gylfi kemst ekki inn á miðjuna í úrvalsliðinu hjá BBC en þar eru þeir Stuart Armstrong hjá Southampton, Aaron Mooy hjá Huddersfield, Andre Gomes hjá Everton og Dele Alli hjá Tottenham. Liðsfélagi Gylfa kemst því í liðið. „Mér fannst Andre Gomes vera óheppinn að komast ekki í úrvalsliðið mitt eftir frammistöðu sína á móti Chelsea á Stamford Bridge. Portúgalski landsliðsmaðurinn er mjög traustur inn á miðjunni en hann er líka öruggur á boltann og hefur auga fyrir sendingum. Það er mjög erfitt að spila á móti Cardiff en Andre Gomes var eini leikmaður Everton sem var eitthvað að ógna þeim. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði kannski markið en það var Andre Gomes sem þreytti þá,“ skrifaði Garth Crooks um Everton-mennina.Úrvalslið vikunnar hjá BBC leit þannig út:Markmaður: Wayne Hennessey (Crystal Palace)Varnarmenn: Trent Alexander-Arnold (Liverpool) Mamadou Sakho (Crystal Palace) Andrew Robertson (Liverpool)Miðjumenn: Stuart Armstrong (Southampton) Aaron Mooy (Huddersfield) Andre Gomes (Everton) Dele Alli (Tottenham)Sóknarmenn: Son Heung-min (Tottenham) Aleksandar Mitrovic (Fulham) Leroy Sane (Man City)
Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira