Messan: Einn af styrkleikum Klopp er að hann breytir um skoðun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. nóvember 2018 10:00 Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool. Vísir/Getty
Strákarnir í Messunni ræddu Liverpool og möguleika lærisveina Jürgen Klopp á því að veita Manchester City einhverja keppni um enska meistaratitilinn á þessu tímabili. Reynir Leósson og Gunnleifur Gunnleifsson voru gestir Ríkharðs Guðnasonar að þessu sinni. Manchester City og Liverpool eru einu taplausu liðin í deildinni eftir tap Chelsea um helgina en City er ríkjandi Englandsmeistari og með tveggja stiga og fjórtán marka forskot á Liverpool. „Mér finnst Liverpool hafa þau gæði að liðið geti veitt þeim keppni. Ég vona það að við fáum spennu í toppbaráttuna og Liverpool er það lið sem helst getur gert það,“ sagði Reynir Leósson í Messunni. Liverpool vann 3-0 sigur á Watford um helgina og Reynir notar þau úrslit í samanburði við sömu viðureign á síðustu leiktíð. „Við sjáum bara Liverpool núna ef minnið er ekki að svíkja mig að leikurinn á móti Watford á síðasta tímabili hafi farið 3-3. Það var fram og til baka fótbolti. Í þessum leik eru þeir ekkert sérstakir þangað til þeir skora fyrsta markið en aftur á móti rosalega þéttir til baka,“ sagði Reynir. Liverpool er búið að breyta um leikskipulag og leikstíl. „Það er styrkleiki hjá Jürgen Klopp að hann breytir um skoðun. Ef eitthvað er ekki að virka þá bara breytir hann því. Skiptir bara um skoðun og segir: Ég vil spila svona bolta,“ sagði Gunnleifur Gunnleifsson. Það má finna alla umfjöllunina um Liverpool hér fyrir neðan.Klippa: Messan: Möguleikar Liverpool á móti Man. City
Enski boltinn Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Fótbolti Fleiri fréttir Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Sjá meira