Fjórir orðaðir við embætti vígslubiskups Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. apríl 2017 07:00 Nýr vígslubiskup á Skálholti verður kosinn síðar á árinu. Kosið verður eftir nýjum reglum. Vísir/Vilhelm
Að minnsta kosti fjórir prestar eru sagðir gefa kost á sér í embætti vígslubiskups í Skálholti. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup lætur af störfum vegna aldurs síðar á þessu ári. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru þeir prestar sem hafa verið orðaðir við embættið fjórir. Það eru þeir Axel Árnason, héraðsprestur á Suðurlandi, Sighvatur Karlsson sóknarprestur á Húsavík, Kristján Björnsson sóknarprestur á Eyrarbakka og Stokkseyri og Eiríkur Jóhannsson í Háteigskirkju. Um helgina skoruðu síðan ellefu nafngreindir prestar á Vigfús Bjarna Albertsson sjúkrahússprest að gefa kost á sér í embættið. Ólíkt hinum fjórum hefur hann ekki lýst áhuga sínum á embættinu hingað til.Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup í SkálholtiKristján Valur segist allt eins eiga von á því að fleiri en þeir sem nú þegar hafi verið nefndir til leiks muni gefa kost á sér í embættið. „Ég tel að það verði ekki fyrr en kjörstjórn gefur út tímabil til þess að ljúka kosningu sem öll nöfn koma í ljós. Þannig að ég hef fulla trú á því að það verði fleiri nöfn í pottinum en þau sem þegar hafa verið nefnd,“ segir hann. Kristján Valur segir ekki heldur viðbúið að næsti vígslubiskup í Skálholti verði karlmaður, þótt konur gegni embætti biskups Íslands og embætti vígslubiskups á Hólum. „Það er ekkert sem segir að það þurfi að vera karl hér. Það mætti alls ekki vera þannig að konur teldu að þeim væri haldið frá því að sækja um embættið. Það gæti bara verið ágætis prufa að hafa einu sinni þrjár konur,“ segir hann. Þegar nýr vígslubiskup verður kjörinn síðar á árinu verður kosið eftir nýjum reglum sem samþykktar voru á síðasta kirkjuþingi, í mars. Þær reglur verða birtar í stjórnartíðindum fljótlega. Nýju reglurnar fela í sér að fyrst fari fram forval þar sem allir vígðir menn innan kirkjunnar velji mann. Þeir þrír menn sem oftast eru nefndir í forvalinu eru síðan í kjöri til vígslubiskups. Hjördís Stefánsdóttir formaður kjörstjórnar segist ekki geta upplýst um þá tímalínu sem framundan er í kjörinu. Hún á þó von á að kjörstjórn hittist núna í vikunni eða næstu til þess að fara yfir þau mál. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira