Málaþurrð ríkisstjórnar vekur undrun Snærós Sindradóttir skrifar 16. mars 2017 07:00 Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra, hefur lagt fram sex lagafrumvörp, nærri helming allra frumvarpa ráðherra. vísir/ernir
Fá mál koma frá ríkisstjórninni til meðferðar þingsins og telja formenn þingflokka minnihlutans meirihlutann ekki ganga í takt. Messufall hefur verið í þingnefndum þar sem engin mál eru á dagskrá sumra nefnda. Eftir 1. apríl er ekki hægt að leggja fram mál til þingsins nema leitað sé afbrigða. Því er skammur tími til stefnu. Fjöldi mála í þingmálaskrá ráðherra sem samþykkt var af ríkisstjórn í janúar á eftir að koma til þings. Átta þingfundardagar eru eftir af marsmánuði. Ráðherrar í ríkisstjórn hafa lagt fram þrettán lagafrumvörp frá því ríkisstjórnin var mynduð. Auk þess hafa sex þingsályktunartillögur komist til þingsins. Þrjú mál ríkisstjórnarinnar bíða svo fyrstu umræðu í þinginu. Frumvörp þingmanna eru hins vegar orðin 38 á þessu þingi. Þar af eru frumvörp stjórnarandstöðunnar 28 talsins. „Þessi vinnubrögð eru ekki í takt við hin nýju vinnubrögð sem Björt framtíð og Viðreisn töluðu svo mikið um,“ segir Ásta Guðrún Helgadóttir, þingflokksformaður Pírata. Þórunn Egilsdóttir, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, er sammála Ástu Guðrúnu um rólega tíð í þinginu. „Maður hefur það á tilfinningunni að þessi ríkisstjórn verði ekki ríkisstjórn mikilla afreka. Það virðist vera langt á milli þeirra í stórum málum og veikleikar stjórnarinnar hafa komið fram nú þegar,“ segir Þórunn. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira