Kynferðisofbeldi gegn konum – hvað getum við karlar gert? Hjálmar Gunnar Sigmarsson 12. desember 2017 08:00 .
Stígamót hafa alla tíð lagt mikla áherslu á umræðuna um ofbeldismenn, enda snýst allt starf Stígamóta um afleiðingar gerða þeirra. Við karlmenn erum í lykilhlutverki til þess að takast á við nauðgunarmenningu og það hvernig þessi menning réttlætir ofbeldi og gerir ofbeldismönnum kleift að komast upp með ofbeldisverkin. Byltingar undanfarinna ára hafa sýnt að þeir sem beita ofbeldi eru venjulegir menn – þetta eru vinir, ættingjar, vinnufélagar og áhrifavaldar. Við karlmenn komumst því ekki lengur upp með að segja að ofbeldi komi okkur ekki við og það séu bara örfá skrímsli sem fremji slíka verknaði. Við karlar erum í lykilstöðu til að takast á við þá ofbeldismenn sem við þekkjum. Við karlmenn erum í lykilhlutverki til þess að takast á við nauðgunarmenningu og það hvernig þessi menning réttlætir ofbeldi og gerir ofbeldismönnum kleift að komast upp með ofbeldisverkin. Byltingar undanfarinna ára hafa sýnt að þeir sem beita ofbeldi eru venjulegir menn – þetta eru vinir, ættingjar, vinnufélagar og áhrifavaldar. Við karlmenn komumst því ekki lengur upp með að segja að ofbeldi komi okkur ekki við og það séu bara örfá skrímsli sem fremji slíka verknaði. Við karlar erum í lykilstöðu til að takast á við þá ofbeldismenn sem við þekkjum. Þetta vekur auðvitað upp þá spurningu hvernig við nálgumst þessa umræðu og auk þess hvernig við tryggjum að umræðan sé brotaþolavæn. Hvernig tryggjum við að umræðan nái lengra í að brjóta niður nauðgunarmenningu og að færri karlmenn beiti kynferðisofbeldi? Karlar eru meira áberandi í jafnréttisumræðunni í dag en áður. En það er ekki nóg að virkja fleiri karlmenn í baráttunni gegn kynferðisofbeldi, og það er ekki nóg að segja „góðir strákar nauðga ekki“. Það þarf að dýpka umræðuna. Við karlmenn þurfum að taka virkan þátt í að berjast gegn fjölbreyttum birtingarmyndum kynjamisréttis og kynferðisofbeldis í okkar umhverfi. Til þess að vera raunverulegir bandamenn í þessari baráttu þurfum við að taka ábyrgð, við verðum að leggjast í sjálfskoðun og eiga erfið samtöl við karla í okkar lífi. Það er skylda okkar að bæta hlustunarskilyrðin. Til þess þurfum við að halda áfram að hlusta, læra og skilja.Námskeið fyrir áhugasama karla Stígamót munu halda námskeið helgina 24.-25. febrúar 2018, fyrir karla sem vilja taka virkan þátt í baráttunni gegn kynferðisofbeldi. Markmiðið verður að þátttakendur öðlist dýpri skilning á mikilvægum viðfangsefnum sem varða kynferðisofbeldi gegn konum og öðlist verkfæri til að þróa aðferðir og aðgerðir til að ná til og virkja fleiri karlmenn í baráttunni. Til að skrá ykkur og fá nánari upplýsingar um námskeiðið sendið tölvupóst á hjalmar@stigamot.is.
Mest lesið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Kát á kynfræðslukarnivali Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Fleiri fréttir Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Sjá meira