Clement varar Gylfa við að fara í stærra lið: Er betra að vera lítill fiskur í stórri tjörn? Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. maí 2017 11:00 Gylfi Þór Sigurðsson er eftirsóttur. vísir/getty
Paul Clement, knattspyrnustjóri Swansea, varar Gylfa Þór Sigurðsson við því að fara til stórliðs eins og Tottenham en íslenski landsliðsmaðurinn er eftirsóttur og gæti yfirgefið velska liðið í sumar. Everton er sagt ætla að bjóða 25 milljónir punda í Gylfa Þór sem spilaði áður í tvö ár fyrir Tottenham áður en hann gafst upp á litlum spiltíma þar og gekk aftur í raðir Swansea. Hjá Swansea hefur Gylfi Þór orðið einn af bestu miðjumönnum ensku úrvalsdeildarinnar en hann er búinn að skora níu mörk og leggja upp þrettán á tímabilinu. „Gylfi er í einstakri stöðu,“ sagði Clement á blaðamannafundi í morgun. „Hann var hér á láni en fór svo til Tottenham til að taka næsta skref á sínum ferli. Það gekk ekki upp.“„Hann kom aftur til Swansea og hefur staðið sig frábærlega. Hann getur ekki farið í annað lið núna og lent í því sama og hjá Tottenham þar sem hann er inn og út úr liðinu. Hann verður að hafa það í huga þegar hann ákveður sig.“ „Þá er betra að vera áfram hér sem lykilmaður og halda áfram að koma þessu félagi upp á næsta þrep,“ sagði Clement. Gylfi Þór er í þeirri stöðu, segir Clement, að hann þarf að ákveða hvort hann vilji vera aðalmaðurinn í sínu liði eða vera í minna hlutverki hjá stærra liði. „Það er fullt af leikmönnum sem þurfa að taka svona ákvörðun. Ég er ekkert endilega að tala um Gylfa en vilja þessir menn vera litlir fiskar í stórri tjörn eða stórir fiskar í lítilli tjörn? Gylfi er metnaðarfullur og það skil ég vil. Ég vona að hann verði hér áfram en líka að hann fái tækifæri til að spila fyrir stórlið í framtíðinni,“ sagði Paul Clement.
Enski boltinn Mest lesið Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira