Fótbolti

Glódís: Það var kominn tími til að Freyr myndi syngja fyrir okkur

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir er á leið á sitt annað stórmót.
Glódís Perla Viggósdóttir er á leið á sitt annað stórmót. vísir/vilhelm
Glódís Perla Viggósdóttir, miðvörður íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, er eðlilega orðin mjög spennt fyrir fyrsta leik liðsins á EM 2017 sem fer fram eftir sex daga.Stelpurnar mæta þá Frakklandi í Tilburg en þær hafa verið við æfingar síðan á mánudaginn í síðustu viku.

„Það er kominn ótrúlega mikill fiðringur. Við erum að fara út á föstudaginn þannig að þetta er rétt handan við hornið núna. Við reynum bara að halda okkur á mottunni og reynum að nýta þessa daga sem við eigum áður en við förum út. Þeir skipta miklu máli,“ segir Glódís.

Sjá einnig:Glódís Perla: „Þú getur breytt þessu flugi heim“

Nóg er að gera hjá stelpunum sem eru á forsíðum allra blaða og tímarita þessa dagana, sitja fyrir í auglýsingum og koma fram í sjónvarpsþáttum. Þetta er ekki alveg það sem þær hafa alltaf þurft að venjast.

„Þetta er ótrúlega gaman en aðeins öðruvísi en ég hef upplifað áður. Það er svolítið mikið að gera - meira en maður er vanur,“ segir Glódís en hvernig er að gera allt þetta en reyna að einbeita sér að undirbúningi fyir mótið?

„Á móti setur maður fókusinn síðan bara 100 prósent hingað. Maður nær kannski ekki að vera að gera annað sem maður væri annars að gera hérna á Íslandi. Maður er svolítið bara í landsliðsbúbblunni núna. Það er aðeins öðruvísi,“ segir Glódís Perla.

Freyr Alexandersson tók lagið.vísir/vilhelm

Unnið lengi fyrir þessu

Áhuginn á liðinu og umfjöllunin hefur aldrei verið meiri eins og fjallað hefur verið um. Glódís hefur mjög gaman að hversu mikill áhuginn er og stemninginn og segir að öll þessi umfjöllun muni hjálpa til þegar í mótið verður komið.

„Það er ótrúlega gaman að sjá þetta koma svona sterkt inn núna, sérstaklega í kringum þetta mót. Maður finnur fyrir ótrúlegum stuðningi frá fjölmiðlum á Íslandi og þetta dreifir úr sér til almennings. Þeir eru líka 100 prósent með okkur og það er geggjað að fá að upplifa þetta og vera með í þessu,“ segir Glódís.

„Við erum núna tilbúnar í fjölmiðlaáreitið sem verður úti. Það mun hjálpa okkur. Það skiptir ótrúlega miklu máli og við erum ótrúlega þakklátar fyrir það. Við erum á móti búnar að vinna fyrir þessu lengi og verið að standa okkur vel úti á vellinum þannig það er gott að þetta sé að skila sér.“

Stelpurnar voru í mikilli og góðri æfinga- og hópeflisferð á Selfossi um síðustu helgi þar sem þær til dæmis gistu ekki á hóteli eins og vanalega heldur í íbúðum.

„Þetta var aðeins öðruvísi en við gerum vanalega. Við vorum fimm saman í íbúð. Svo vorum við að æfa og fórum líka í Mjölni á föstudeginum sem var ótrúlega skemmtilegt. Það var öðruvísi líkamstrækt en mjög skemmtileg. Einnig fórum við í hellaskoðun og gerðum ýmislegt. Þetta var mikil liðshelgi sem var geðveikt,“ segir Glódís en um kvöldið var svo sungið saman og þar þurfti Freyr Alexandersson meðal annars að taka lagið fyrir stelpurnar.

„Það var kominn tími til að hann myndi aðeins syngja fyrir okkur,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir.

Allt viðtalið við Glódísi Perlu má sjá í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir

Þjóðin áfram í partígír

Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður íslenska kvennalandsliðsins, fyllist þjóðar­stolti við að sjá áhugann á stelpunum okkar fyrir EM. Er klár í fyrsta leikinn.

Hægt að hitta stelpurnar okkar á Laugardalsvellinum í dag

Íslenska kvennalandsliðið leggur af stað til Hollands á föstudaginn eða eftir aðeins tvo daga. Framundan er Evrópumótið í fótbolta þar sem þær ætla sér stóra hluti og að fylgja eftir frábærum árangri karlalandsliðsins í fyrrasumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×