Zlatan sagður átta sig á stöðunni hjá United og ætlar í MLS Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. apríl 2017 08:30 Zlatan verður ekki meira með á tímabilinu. vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic er sagður hafa sætt sig við það að ferli hans hjá Manchester United er lokið vegna meiðslanna sem hann varð fyrir í Evrópudeildinni á móti Anderlecht í síðustu viku og nú stefnir hann á MLS-deildina í Bandaríkjunum. Það er enska götublaðið Daily Mirror sem greinir frá þessu en eftir að slá í gegn á sinni fyrstu leiktíð í enska boltanum sleit Svíinn magnaði krossband í síðustu viku og spilar hann ekkert meira á þessu ári. Zlatan var aldrei búinn að skrifa undir nýjan samning við Manchester United og er nú sagður ætla að spila næst í MLS-deildinni í Bandaríkjunum en tímasetningin á upphafi hennar hentar sænska framherjanum mjög vel. MLS-deildin hefst í mars á hverju ári þannig Zlatan ætti, ef endurhæfingin gengur vel, að vera klár í slaginn í fyrsta leik fari svo að hann semji við lið í þessari ungu og vaxandi deild. Zlatan skoraði 28 mörk í 46 leikjum fyrir Manchester United á leiktíðinni, þar af 17 í ensku úrvalsdeildinni og þá varð hann deildabikarmeistari með liðinu. Fari svo að United komist í úrslitaleik Evrópudeildarinnar missir hann af einstöku tækifæri að spila úrslitaleikinn í sínu heimalandi, Svíþjóð.
Enski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Fleiri fréttir Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Sjá meira