Barnaníðingur sem þóttist vera Justin Bieber ákærður fyrir 931 brot Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 9. mars 2017 07:58 Justin Bieber. Vísir/Getty
Maður sem þóttist vera poppstjarnan Justin Bieber á netinu hefur verið ákærður fyrir meira en 900 kynferðisbrot í Ástralíu. Samkvæmt lögreglu í Queensland fór maðurinn, sem er 42 ára, undir fölsku flaggi og þóttist vera kanadíska poppstjarnan til að nálgast kynferðislegar myndir frá börnum. Hann er ákærður fyrir 931 glæp og er talið að hann hafi brotið gegn 157 börnum um allan heim. Jon Rouse, varðstjóri í Queensland segir glæpina „hryllingslega“ og bað unga aðdáendur söngvarans og foreldra þeirra að vera á varðbergi. „Það að svo mörg börn hafi trúað því að þau hafi átt í samskiptum við þennan tiltekna fræga einstakling varpar ljósi á að við þurfum að endurskoða hvernig við fræðum börn um netöryggi,“ sagði Rouse. Lögreglan í Queensland hefur hlotið aðstoð lögregluyfirvalda um heim allan við rannsóknina, þar á meðal í Þýskalandi og frá heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna. Talið er að 50 börn hafi verið búsett í Bandaríkjunum, allt að 20 í Bretlandi og sex í Ástralíu. Enn er verið að afla upplýsinga um búsetu annarra sem urðu fyrir barðinu á manninum. Maðurinn átti þegar yfir höfði sér ákæru í Queensland fyrir vörslu á vafasömu efni en eftir leit lögreglu í tölvu hans urðu ákærurnar 931. Maðurinn hafði meðal annars nýtt sér Facebook og Skype til að eiga samskipti við börnin. Brotin ná aftur til ársins 2007 og er hann meðal annars ákærður fyrir þrjár nauðganir.
Mest lesið Var á yfir 200 kílómetra hraða þegar slysið varð Innlent Landlæknir sviptir Kalla Snæ lækningaleyfi Innlent Sprengjum og öxum beitt við heimili til að kúga út fé Innlent Fann sér ekki stað hjá forsetanum eftir breytingar Innlent Fær þyngri dóm fyrir að nauðga fjórtán ára tálbeitu Innlent Hætt eftir tveggja mánaða störf fyrir borgarstjóra Innlent Þota með á þriðja hundrað manns brotlenti í íbúðahverfi Erlent Viktor Arman lést af slysförum á Esjunni Innlent Gáfu fjölskyldu Víglundar draumavél feðganna Innlent Blóðugur háhyrningur í fjöru Kjalarness Innlent Fleiri fréttir Staðfesta 241 andlát og einn eftirlifanda Réðust á tómstundamiðstöð fyrir útlendinga þegar óeirðir héldu áfram Telur að enginn hafi komist lífs af úr flugslysinu Ísraelar sagðir undirbúa árásir á Íran Sigldu tveimur flugmóðurskipum lengra en áður út á Kyrrahafið Þota með á þriðja hundrað manns brotlenti í íbúðahverfi Fækka í sendiráðinu í Bagdad vegna öryggisógnar Púað á Trump í Kennedy Center og mótmælin breiðast út Bandarískar herstöðvar verða reistar í Danmörku Ró að færast yfir LA eftir fjögur hundruð handtökur Undirbúa flutning þúsunda til Guantánamo Súdanar flýja undan sveitum Haftars „Rasísk glæpamennska“ hélt áfram á Norður-Írlandi í nótt Hermenn bauluðu á Biden, Newsom og blaðamenn Musk sér eftir sumum færslunum sem hann birti um Trump Þriggja daga þjóðarsorg í Austurríki „Stundin sem við höfum óttast er runnin upp“ Íslendingur í Graz: „Brotna niður við að hugsa um þessa foreldra“ Kona látin eftir stunguárás í Noregi Þungi færist í árásir Rússa: „Þetta er orðið partur af okkar lífi“ Rússar líta ekki lengur á Bandaríkin sem sinn helsta óvin Tíu látnir í Graz: Byssumaðurinn sagður vera gamall nemandi Rekur bólusetningaráð stjórnvalda á einu bretti Einar hörðustu árásirnar á Kænugarð til þessa Níu látnir eftir skotárás í Austurríki Hundruð milljóna um allan heim muni eignast færri börn en þau vilja Greta Thunberg á leið heim til Svíþjóðar Sendir tvö þúsund þjóðvarðliða til viðbótar til Los Angeles Sjö hundruð landgönguliðar á leið til Los Angeles Newsom ætlar að kæra Trump Sjá meira