Nýr forseti Evrópuþingsins kjörinn á morgun atli ísleifsson skrifar 16. janúar 2017 12:49 Gianni Pittella, Guy Verhofstadt and Antonio Tajani. Vísir/AFP
Þingmenn Evrópuþingsins munu kjósa sér nýjan forseta á morgun og bendir flest til að Ítali verði fyrir valinu. Ítalski Evrópuþingmaðurinn Antonio Tajani er frambjóðandi Kristilegra demókrata (EPP) á þinginu en þinghópurinn er sá stærsti á þinginu. Hinn 63 ára Tajani er einn af varaforsetum þingins og átti áður sæti í framkvæmdastjórn ESB þar sem hann fór með málefni samgangna og iðnaðar. Martin Schultz hefur gegnt embætti forseta Evrópuþingsins frá árinu 2012, en tilkynnti fyrr í vetur að hann hugðist láta af embætti og snúa aftur í þýsku landsmálin þar sem þingkosningar fara þar fram í haust. Bendir flest til að Schultz verði gerður að utanríkisráðherra Þýskalands í næsta mánuði þegar Frank-Walter Steinmeier verður að öllum líkindum skipaður forseti landsins.Martin Schultz.Vísir/AFPTajani er þó ekki óumdeildur þar sem hann hefur ÁÐUR starfað náið með fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Belusconi. Jafnaðarmenn á Evrópuþinginu tefla fram samlanda Tajani, Gianni Pittella, sem hefur átt sæti á Evrópuþinginu frá 1999. Frjálslyndir demókratar hafa tilnefnt Guy Verhofstadt, fyrrverandi forsætisráðherra Belgíu, og Íhaldsmenn á Evrópuþinginu (ECR), sem eru efasemdarmenn þegar kemur að Evrópusamrunanum, hina belgísku Helgu Stevens. Þingmenn þinghóps EPP eru 214 talsins, þingmenn þinghóps Jafnaðarmanna 189, Frjálslyndra demókrata 69, Íhaldsmanna 74 og annarra hópa samtals 205. Kosning nýs forseta hefst klukkan átta í fyrramálið að íslenskum tíma, en búist er við að útslit liggi fyrir um kvöldið. Hafi enginn frambjóðandi náð hreinum meirihluta í fyrstu þremur umferðum kosninganna er kosið milli þeirra tveggja sem hlutu flest atkvæði í þriðju umferðinni.
Tengdar fréttir Ítalir kljást um að verða næsti forseti Evrópuþingsins Þinghópur kristilegra demókrata (EPP) hafa tilnefnt Ítalann Antonio Tajani til að taka við forsetaembættinu af Martin Schultz. 14. desember 2016 10:00 Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Sjá meira
Ítalir kljást um að verða næsti forseti Evrópuþingsins Þinghópur kristilegra demókrata (EPP) hafa tilnefnt Ítalann Antonio Tajani til að taka við forsetaembættinu af Martin Schultz. 14. desember 2016 10:00