Man eftir stóru flugunni Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 2. september 2017 09:45 Áslaug fór á útisýningarnar á Skólavörðuholti með foreldrum sínum þegar hún var barn og heillaðist. Vísir/Anton Brink
Bókin er mikilvægt gagn í íslenskri listasögu og góður efniviður til að rannsaka. Hún er búin dýrmætu myndefni og áður óbirtu, meðal annars af verkum sem hafa glatast að eilífu, enda voru sum þeirra úr forgengilegum efnum,“ segir Áslaug Thorlacius skólastjóri um nýja bók, Útisýningarnar á Skólavörðuholti 1967-1972 eftir þær Ingu Ragnarsdóttur myndlistarmann og Kristínu G. Guðnadóttur listfræðing. Útgáfunni verður fagnað í dag klukkan 16 í Ásmundarsal við Freyjugötu. Sýningarnar á Skólavörðuholti þóttu ögrandi og óheflaðar. Bókin er gefin út í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá þeirri fyrstu og jafnframt fagnar Myndlistaskólinn í Reykjavík 70 ára afmæli sínu, sýningarnar voru einmitt haldnar að frumkvæði hans. „Þarna sýndu bæði nemendur og kennarar. Svona var þetta frjálslegt,“ segir Áslaug sem er skólastjóri Myndlistaskólans nú og var í ritstjórn bókarinnar fyrir hönd hans. Sjálf fór hún á útisýningu með foreldrum sínum þegar hún var barn. „Ég man eftir stóru flugunni hans Magnúsar Tómassonar sem var sýnd 1970,“ nefnir hún og segir myndirnar í bókinni ómetanlega heimild um gróskutíma í þrívíðri myndlist. „Á þessum tíma er Ísland að tengjast umheiminum í listum. Bæði Dieter Roth og hinn kóreski Nam June Paik urðu eins og vörður á þeim vegi. Við höfðum verið dálítið einangruð. Listamenn höfðu farið til náms í konunglegu akademíurnar en voru ekki þar sem mesta gerjunin var í heiminum,“ útskýrir hún og segir vissulega marga hafa litið niður á þessa nýju list. „Þetta var líka á þeim tíma sem fólk var með afdráttarlausar skoðanir á hlutunum. Hún varð nú fræg brauðvarðan hans Kristjáns Guðmundssonar sem heilbirgðisyfirvöld bönnuðu. En auðvitað voru einhverjir hrifnir og sáu tjáningarfrelsið sem birtist í verkunum.“ Minningarsjóður um Ragnar Kjartansson, Myndlistaskólinn í Reykjavík og Myndhöggvarafélagið standa að útgáfu bókarinnar. Áslaug segir Ásmundarsal á Freyjugötunni verða opinn líka á morgun, sunnudag, milli klukkan 16 og 18 og að bókin verði á tilboðsverði um helgina.
Mest lesið Upplifði létti þegar mamma dó Lífið Oddvitaáskorunin: Óþarflega tímafrekt að pikka inn skilaboð Lífið Ósátt við að vera sett í starfshæfismat af leikhúsinu Lífið Oddvitaáskorunin: Þjóðkirkjan sé tímaskekkja Lífið Oddvitaáskorunin: Þekktur sem Iceman í Noregi Lífið Oddvitaáskorunin: Reagan mjög miskilinn forseti Lífið Fréttatía vikunnar: Vík burt, hantaveira og Netflix-uppnám Lífið Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Lífið Bakaríið í beinni á Vísi Lífið Ástarsorgin átakanleg en gjöful Tónlist Fleiri fréttir Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Myndlistarkonan Rúna er látin Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Krefja Apple um íslensku Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Íbúar furða sig á horfnu listaverki Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Ævar Þór, Birna og Jón hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Hafnfirðingar vinna að sýningu um Bó Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Sjá meira