Sýknaður af nauðgun: Barði kærustuna en mátti telja að hún væri samþykk Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. október 2017 11:28 Héraðsdómur Reykjaness var fjölskipaður í málinu. vísir/gva
Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað karlmann af ákæru um nauðgun þar sem ekki þótti sannað að hann haft samræði við kærustu hans án hennar samþykkis. Mátti hann telja að hún væri samþykk samræðinu þrátt fyrir að hún segist hafi beðið hann um að hætta. Karlmaðurinn var dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir að ganga í skrokk á konunni. Maðurinn var ákærður fyrir „nauðgun og brot í nánu sambandi, með því að hafa á alvarlegan hátt ógnað lífi, heilsu og velferð“ sambýliskonu sinnar „með ofbeldi, frelsissviptingu og hótunum að kvöldi miðvikudagsins 4. janúar 2017 og fram á aðfaranótt fimmtudagsins 5. janúar 2017 á heimili þeirra beggja.“ Þau höfðu þá búið saman í einn mánuð. Atburðarrásinni er lýst í ákæru á hendur manninum. Þar segir að hann hafi rifið konuna úr náttbuxum, lagst ofan á hana og haft við hana samræði þrátt fyrir að hún hafi ekki sagst vilja það. Hafi hann ýtt henni niður er hún reyndi að reisa sig við.Sjá einnig: Meintur nauðgari víkur ekki úr dómsal Eftir þetta sofnaði karlmaðurinn en fyrir dómi lýsti konan því hvernig maðurinn hefði haldið svo fast utan um hana á meðan hann svaf að hún ekki komist frá honum. Vaknaði hann eftir um 30 mínútur og reyndi þá aftur að hafa samræði við konuna. Í ákærunni segir að maðurinn hafi þá þvingað konunna til kynmaka og munnmaka en ekki getað það sökum ölvunarástands. Fyrir dómi var brotaþoli spurð um það hvort hún hefði streist á móti kynmökum í það skiptið og svaraði brotaþoli því til að hún hefði reynt að segja við brotaþola: „Tölum bara saman, förum að sofa, ekki gera þetta núna.“Ósannað að maðurinn hafi notfært sér yfirburði sína Karlmaðurinn neitaði sök, sagði að samfarirnar og munnmökin hafi verið eðlileg og með fullum vilja og samþykki konunnar. Fyrir dómi sagði karlmaðurinn að konan hefði aldrei lýst sig mótfallna kynlífinu á meðan því stóð. Þá segir í dóm héraðsdóms að ekki verði annað ráðið af framburði konunnar en að „hún hafi tekið þátt í samförunum og munnmökunum“. Í dóminum segir að með vísan til þessa sem og annarra atriða sem þar eru rakin að ekki verði „hjá því komist að álykta sem svo að ákærði hafi eins og á stóð haft réttmæta ástæðu til að ætla að brotaþoli hafi verið samþykk atlotum hans og samförunum.“ Því teljist það ósannað að maðurinn hafi af ásetningi notfært sér yfirburði sína gagnvart brotaþola vegna aflsmunar og gegn vilja hennar haft við hana samræði í leggöng og eftir að hafa sofið um stund þvingað hana til kynmaka í leggöng og til að hafa við hann munnmök eins og lýst er í ákæru málsins. Var hann því sýknaður af ákærunni um að hafa nauðgað konunni. Sagðist hafa reiðst henni vegna skilaboða á Skype Manninum var einnig gefið að sök að hafa í beinu framhaldi af samræðinu slegið konuna ítrekað í höfuðið þar sem hún lá í rúminu. Í ákærunni segir að þegar konan hafi reynt að komast út úr íbúðinni hafi maðurinn lokað hurðinni, rifið í hár konunnar, dregið hana upp í rúm og hótað henni lífláti. Hlaut konan margvíslega áverka við þetta, þar á meðal „marbletti undir augum og kúlu ofarlega á enni, heilahristing, rof á hljóðhimnu vinstra megin, skurð innanvert á neðri vör, marbletti og þrota í húð á upphandleggjum, mar og hrufl á hné, mar á lærum og húðrispur og mar aftan á baki.“ Maðurinn játaði að hafa slegið konuna ítrekað í andlit og höfuð. Þá kvaðst hann hafa tekið í hárið á brotaþola á meðan á átökunum stóð. Í framburði ákærða fyrir dómi kom fram að hann hefði reiðst brotaþola eftir að hafa fundið skilaboð á Skype um að brotaþoli elskaði annan mann líka. Hafi hann viljað fá skýringar á því. Hann neitaði hins vegar að hafa meinað konunni að fara úr íbúðinni. Fyrir dómi, 9. janúar 2017, og hjá lögreglu sagði konan að það hefði pirrað hann að hann skyldi ekki fá „fullnægingu í samförum þeirra“ og því hafi hann farið að lemja hana með þeim orðum að hann ætlaði að sanna fyrir henni hvað hann elskaði hana mikið. Konan gaf hins vegar ekki skýrslu fyrir dómi við aðalmeðferð málsins eftir að því var hafnað að hinn ákærði viki úr salnum á meðan. Í dómi héraðsdóms segir að það þyki sannað að maðurinn hafi veist á alvarlegan hátt að konunni með þeim afleiðingum sem lýst er hér að ofan, svipt hana frelsi um stund og haldið henni nauðugri á heimili þeirra og hótað henni lífláti. Var hann sakfelldur fyrir þessa háttsemi og dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar af er níu mánuðir skilorðsbundnir. Þá þarf maðurinn að greiða konunni 800 þúsund krónur, helming þóknunar verjenda hans og helming þóknunar skipaðs réttargæslumanns konunnar, auk annars sakarkostnaðar, samtals um þrjár milljónir króna. Dóm héraðsdóms má sjá hér.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira