Sagðar nota WhatsApp til að forðast ágenga þingmenn Samúel Karl Ólason skrifar 27. október 2017 14:15 Í WhatsApp-hópi er meðal annars varað við því að fara með tilteknum þingmanni í leigubíl og konum bent á að fara ekki með öðrum inn í lyftu. Einn ráðherra er sagður hafa gripið í rass konu í samkomu. Vísir/EPA
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, heitir því að meinta kynferðislega áreitni þingmanna gagnvart kvenkyns starfsmönnum breska þinghússins, í Westminster, verði rannsökuð. Starfsmennirnir eru sagðir nota skilaboðaþjónustuna WhatsApp til að vara hvora aðra við tilteknum þingmönnum og jafnvel ráðherrum í ríkisstjórn May. Forsætisráðherrann hefur einnig kallað eftir því að allir með upplýsingar um áreitni stígi fram. „Allar ásakanir verða tekna mjög alvarlega og við viljum hvetja fólk til að hafa samband við lögreglunna sé tilefni til rannsóknar hennar,“ sagði talsmaður May við fréttastofu Sky. May mun ekki vita til þess að ásökun um kynferðislega áreitni hafi verið lögð fram opinberlega. Ásakanirnar komu fyrst fram í dagblaðinu Sun. Í frétt dagblaðsins er haft eftir heimildum að von gæti verið á afsögnum þingmanna vegna ásakanana og að þær nái til þingmanna allra flokka. Sun birti skilaboð úr WhatsApp þar sem umræddar konur voru að nafngreina þingmenn og segja hvað þeir hefðu gert. Nöfnin hafa verið þurrkuð út. Þar er meðal annars varað við því að fara með tilteknum þingmanni í leigubíl og konum bent á að fara ekki með öðrum inn í lyftu. Einn ráðherra er sagður hafa gripið í rass konu í samkomu. Nú um helgina sagði einn þingmaður Verkamannaflokksins frá því á Twitter að hann muni benda leiðtogum flokksins á „skelfilegt framferði“ annars þingmanns Verkamannaflokksins gagnvart ungri konu. Hann spurði af hverju kvörtun hennar hefði verið hundsuð.I will be naming a Labour MP who behaved appalling towards a young woman to the chief whip and leader Why was her complaint ignored before?— John Mann (@JohnMannMP) October 19, 2017 Samkvæmt Sky mun Mann hafa nefnt manninn við Jeremy Corbyn, formann Verkamannaflokksins, um síðustu helgi. Einn heimildarmaður Sun sagði að umræddir menn væru orðnir vel þekktir meðal starfsmanna þinghússins og að búið væri að semja lista yfir þá fyrir nýja starfsmenn.
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Fleiri fréttir Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Sjá meira