Vinnusemi og óeigingirni: Svona hefur Gylfi snúið dæminu við hjá Everton Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. desember 2017 16:15 Gylfi Þór Sigurðsson er duglegur að sinna varnarvinnunni. vísir/getty
Eftir rólega byrjun hefur Gylfi Þór Sigurðsson náð sér betur á strik í síðustu leikjum Everton. Gylfi hefur skorað tvö mörk og gefið tvær stoðsendingar í síðustu sex leikjum Everton í ensku úrvalsdeildinni. Hann verður væntanlega á sínum stað í byrjunarliðinu þegar Everton tekur á móti hans gömlu félögum í Swansea City í kvöld. Blaðamennirnir Sam Carroll og David Prentice fara í löngu máli yfir breytinguna á frammistöðu Gylfa í síðustu leikjum í grein sem birtist á Liverpool Echo í dag. Þeir segja að þótt Gylfi sé hetja á Íslandi og í Swansea hafi hann verið misskilinn hjá Everton og 45 milljóna punda verðmiðinn hafi haft greinileg áhrif á hann. Carroll og Prentice segja að þegar verst gekk hjá Gylfa hafi verið eins og Tottenham-bölvunin hafi fylgt honum til Everton. Þeir segja hins vegar að snúningspunkturinn hafi komið í 2-2 jafntefli Everton og Crystal Palace fyrir mánuði. Gylfi lagði upp annað mark Everton í leiknum og hefur haldið uppteknum hætti síðan þá. Carroll og Prentice segja að mörk og stoðsendingar gefi ekki rétta mynd af Gylfa sem leikmanni og það sé heldur ekki það sem stuðningsmenn Everton kunni mest að meta við íslenska landsliðsmanninn. Það sé vinnusemin og óeigingirnin. Í greininni er bent á að á síðasta tímabili hafi enginn leikmaður í ensku úrvalsdeildinni hlaupið meira en Gylfi og hann sé að skila svipuðum hlaupatölum í vetur. Carroll og Prentice ljúka greininni á að segja að Gylfi hafi unnið stuðningsmenn Everton á sitt bann með því að setja þarfir liðsins ofar sínum eigin.Greinina má lesa með því að smella hér.
Enski boltinn Tengdar fréttir Mun Gylfi refsa sínu gamla liði? Gylfi Þór Sigurðsson er enn að komast í gang hjá nýju félagi og mætir í kvöld gamla félaginu sínu sem saknar hann sárt. 18. desember 2017 11:30 Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Sjá meira
Mun Gylfi refsa sínu gamla liði? Gylfi Þór Sigurðsson er enn að komast í gang hjá nýju félagi og mætir í kvöld gamla félaginu sínu sem saknar hann sárt. 18. desember 2017 11:30