Maðurinn sem bjargaði heiminum frá kjarnorkustríði látinn Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 18. september 2017 21:42 Stanislav Petrov var 77 ára þegar hann lést. Vísir/Getty
Stanislav Petrov, liðsforingi í sovéska hernum, sem sagður er hafa bjargað heiminum frá kjarnorkustríði á níunda áratug síðustu aldar er látinn, 77 ára að aldri. Guardian greinir frá. Petrov var á vakt í leynilegri stjórnstöð sovéska hersins þann 26. september 1983 þegar eftirlitstæki gáfu til kynna að Bandaríkin hefðu skotið fimm flugskeytum í átt að Sovétríkjunum. Kalda stríðið á milli ríkjanna var í algleymingi á þessum tíma og hefði Petrov, samkvæmt reglum sovéska hersins, átt að láta yfirmenn sína vita og svara árásinni með því að senda flugskeyti af stað til Bandaríkjanna. Petrov var 44 ára þegar atvikið átti sér stað hunsaði viðvörunina tækjunum. Hafði hann einfaldlega á tilfinningunni að eitthvað væri að tækjunum og að eiginleg árás væri ekki að eiga sér stað. Í stað þess að fyrirskipa um árás tilkynnti hann um bilun í kerfinu. Hann segir þó að hann hafi ekki getað verið viss um að árás væri ekki yfirvofandi. „23 mínútum seinna áttaði ég mig á því að ekkert hafði gerst. Ef þetta hefði verið alvöru árás hefði ég vitað af því. Það var svo mikill léttir,“ sagði hann við BBC árið 2013. Gjörðir Petrov urðu ekki kunngur alheiminum fyrr en árið 1998 þegar hershöfðinginn Yuri Votintsev skrifaði um þær í endurminningum sínum. Petrov varð í kjölfarið heimsfrægur. Hann lést þann 19. maí í úthverfi Moskvu þar sem hann bjó einn en lát hans var ekki tilkynnt fyrr en nú Hann lætur eftir sig son og dóttur.
Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Fleiri fréttir Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Sjá meira