Gunnar hefur verið í 70 ár í Brunavarðafélaginu og vann í 40 ár hjá Slökkviliðinu í Reykjavík. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, tók meðfylgjandi myndir þegar Gunnari var veitt viðurkenningin í dag en með honum á myndunum eru þeir Ari Hauksson, formaður Brunavarðafélags Reykjavíkur, og Jónas Árnason, varaformaður félagsins.


