Leiðbeinandi Huldu Bjarkar ákærður fyrir manndráp af gáleysi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. júní 2016 16:05 Hulda Björk lést í svifvængjaflugslysi í Sviss í júlí 2013. vísir
Saksóknari í Sviss hefur ákært svifvængjaflugsleiðbeinanda Huldu Bjarkar Þóroddsdóttur fyrir manndráp af gáleysi. Hulda lést í svifvængjaflugslysi í Sviss í júlí 2013 þegar hún var ásamt eiginmanni sínum og hópi annarra á skipulagðri æfingu í svifvængjaflugi. Í frétt Vísis frá því sumarið 2013 segir að í lokaæfingu undir stjórn leiðbeinanda lenti Hulda í aðstæðum sem hún réð ekki við og varafallhlíf náði ekki að draga nægilega úr falli. Hulda var látin þegar að var komið. Í umfjöllun Sonntags Zeitung um ákæruna segir að leiðbeinandinn sé sakaður um að hafa gefið Huldu rangar leiðbeiningar á æfingunni. Þá hafi hann verið að láta hana gera mjög erfiðar æfingar. Að auki var Hulda með breskt skírteini sem veitti henni leyfi til svifvængjaflugs þar í landi en ekki í Sviss. Sonntags Zeitung ræðir við ekkil Huldu, Jared Bibler. Hann segir frá því að slysið hafi náðst á myndband en verið var að taka æfinguna upp svo hægt væri að nota myndbandið við kennslu síðar meir og fara yfir það sem væri vel gert og mætti betur fara. Bibler segir í viðtalinu að hann hafi oft reynt að horfa á myndbandið en ekki getað það. Í greininni er einnig fjallað um skort á eftirliti með svifvængjaflugi í Sviss og það borið saman við nágrannalandið Þýskaland þar sem mjög strangt eftirlit er með svifvængjaflugi, meðal annars því hvernig æfingar fólk megi gera.
Tengdar fréttir Lést í svifvængjaslysi í Sviss Hulda Björk Þóroddsdóttir lést í svifvængjaslysi skammt frá borginni Zürich í Sviss á laugardaginn var. 22. júlí 2013 16:33 Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér Sjá meira
Lést í svifvængjaslysi í Sviss Hulda Björk Þóroddsdóttir lést í svifvængjaslysi skammt frá borginni Zürich í Sviss á laugardaginn var. 22. júlí 2013 16:33