Mannræninginn í Suður-Karólínu játaði á sig sjö morð Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 6. nóvember 2016 11:16 Kohlhepp játaði meðal annars í nótt að hafa skotið til bana fjórar manneskjur í mótorhjólabúð í grennd við borgina Spartanburg árið 2003. Vísir/EPA/Getty
Bandarískur maður sem var handtekinn eftir að kona fannst hlekkjuð í gámi við skelfilegar aðstæður á landareign hans hefur játað að hafa framið sjö morð. Lögregla hefur fundið þrjú lík grafin á landareigninni, meðal annars lík unnusta konunnar sem maðurinn hélt fanginni. Málið hefur vakið mikinn óhug í Bandaríkjunum, en fjölmiðlar fjölluðu töluvert um hvarf þeirra Kölu Brown og Charles Davids Carver í ágúst síðastliðnum. Það var ekki síst vegna þess að svo virtist sem mannræninginn hefði komist inn á Facebook-síðu Carvers og sent fjölskyldumeðlimum parsins skilaboð þar sem því var haldið fram að það væri í lagi með þau. Það var svo á fimmtudag sem lögregluyfirvöld í Suður-Karólínu fundu hina þrjátíu ára gömlu Kölu Brown, eftir að hafa fengið ábendingu um öskur úr flutningagámi á landareigninni. Hún var í miklu áfalli er hún fannst í gámnum. Hún var hlekkjuð með keðju um hálsinn eins og hundur, að sögn lögregluyfirvalda. Aðstæður í gámnum voru skelfilegar, þar var gluggalaust, ekkert ljós og engin loftræsting. Todd Kohlhepp, dæmdur kynferðisafbrotamaður og eigandi landsins þar sem Brown fannst, var svo handtekinn í tengslum við málið. Konan er talin hafa unnið fyrir Kohlhlepp, sem er skráður fasteignasali, en komið hefur í ljós að hann hefur áður verið dæmdur fyrir mannrán. Brown tjáði lögreglunni eftir að hún var leyst úr prísundinni að að sig grunaði að fjögur lík væru á eigninni, og að hún hefði séð mannræningjann skjóta unnusta sinn til bana. Í gær fannst fyrsta líkið á landareigninni og hefur lögregla nú staðfest að það sé lík Carvers. Kohlhepp játaði meðal annars í nótt að hafa skotið til bana fjórar manneskjur í mótorhjólabúð í grennd við borgina Spartanburg árið 2003. Chuck Wright, lögreglustjóri sem fer með rannsókn málsins, útilokar ekki að Kohlhepp hafi myrt fleiri og er yfirheyrslum og rannsókn málsins hvergi nærri lokið.
Tengdar fréttir Kona fannst „bundin eins og hundur“ við húsleit í Suður-Karólínu Lögregla í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum fann konu, sem hefur verið saknað frá í ágúst, við húsleit í vikunni. Einnig fann lögreglan lík sem ekki hefur náðst að bera kennsl á. 4. nóvember 2016 23:25 Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Sjá meira
Kona fannst „bundin eins og hundur“ við húsleit í Suður-Karólínu Lögregla í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum fann konu, sem hefur verið saknað frá í ágúst, við húsleit í vikunni. Einnig fann lögreglan lík sem ekki hefur náðst að bera kennsl á. 4. nóvember 2016 23:25