Nýnemar MR greiða stórfé fyrir skólabækur Snærós Sindradóttir skrifar 23. ágúst 2016 07:00 Námsbækur nýnema við Menntaskólann í Reykjavík eru meira en tvöfalt dýrari en fyrir nýnema við lagadeild Háskóla Íslands. Rektor segir ástæðuna vera að svona raðist kaupin, þau verði ódýrari eftir því sem líður á námið. Vísir/GVA
Foreldrar nýnema við Menntaskólann í Reykjavík hafa þurft að borga frá níutíu til rúmlega hundrað þúsund króna fyrir námsbækurnar sem nemendum er skylt að eiga fyrir námið í vetur. Foreldrar nemanda á náttúrufræðibraut hafa borgað rúmar 107 þúsund krónur fyrir námsgögn, að pennum og stílabók meðtöldum. Leitast var við að kaupa sem mest á skiptibókamarkaði. Til samanburðar má nefna að móðir nýnema í Menntaskólanum við Hamrahlíð greiddi rúmar fimmtán þúsund krónur fyrir skólabækur. Nýnemum við lagadeild Háskóla Íslands býðst bókapakki með ónotuðum bókum sem kostar rúmar 45 þúsund krónur.Karen María JónsdóttirKaren Maríu Jónsdóttur, móður nýnema í MR, sem er á málabraut, blöskraði verðið sem hún segist ekki hafa gert ráð fyrir að yrði svona hátt. „Þetta voru tæpar 90 þúsund krónur þrátt fyrir að meirihluti bókanna væri keyptur á skiptibókamarkaði og hún hafi fengið gamlar bækur lánaðar. Við reyndum að vera mjög útsjónarsöm og notum bækur sem rétt hanga saman.“ Hún segist alltaf hafa gert ráð fyrir einhverjum bókakostnaði. En þetta gekk svolítið fram af manni. Þetta er ekki beint það sem maður hugsar um varðandi jafnræði til náms. Ég tel það ekki bæta gæði námsins að bókakosturinn sé með þessum verðmiða. Ég myndi halda að það bitnaði á möguleikum fólks til að velja sér nám við hæfi eða eftir áhuga. Það er ekki það sem við viljum í okkar þjóðfélagi, myndi ég ætla.“Yngvi PéturssonYngvi Pétursson, rektor MR, segir að hugmyndin sé að bækurnar endist nemendum lengur en bara fyrsta árið. Kostnaðurinn verði því væntanlega minni síðar á námsárunum. „Síðan erum við með bækur sem hafa ekki verið kenndar áður á fyrsta ári, og eru þá notaðar öll árin. Við erum með erlendar bækur í efnafræði og líffræði sem eru notaðar öll árin.“ Erlendu bækurnar sem Yngvi vísar til eru Inquiry into Life og Essentials of Chemistry. Í síðustu viku kostuðu þessar tvær bækur samtals rúmar 25 þúsund krónur í Bóksölu stúdenta. Aðspurður hvort þessi hái bókakostnaður minnki ekki möguleika barna frá efnaminni fjölskyldum að sækja nám í MR segist Yngvi vona að svo sé ekki. „En ef um eitthvað slíkt er að ræða þá geta þau snúið sér til okkar. Við erum með sjóð sem er hugsaður til að styrkja nemendur sem eru með þannig fjárráð.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Sjá meira