Ásta Kristjáns í ítalska Vogue Guðrún Ansnes skrifar 10. ágúst 2016 11:00 Ásta hefur lengi heillast af rafmagnsstaurunum og greinilegt að þeir eigi líka upp á pallborðið hjá ítölsku tískudrottingunni. Ásta Kristjánsdóttir
Bransinn er að opnast, meiri samvinna hjá fólki og þetta er að breytast mikið að því leyti að þú þarft ekki að búa í New York til að eiga möguleika á að fá stór verkefni og birtingu í stórum miðlum,“ segir ljósmyndarinn Ásta Kristjánsdóttir, en ítalska Vogue birti mynd eftir hana á dögunum. „Maður þarf ekki lengur að labba milli fyrirtækja í stórborgum með möppuna sína til að eiga möguleika,“ segir Ásta og skellir upp úr. Spurð um hvernig það æxlist að slíkt tækifæri skjóti upp kollinum svarar hún: „Ég var í svokölluðu workshop hjá fyrirtækinu Mastered og tók þar námskeið hjá tískuljósmyndaranum Nick Knight. Þau komu hingað til lands og Alessia Glaviano, aðstoðarritsjóri ítalska Vogue og Vogue homme, skoðaði möppuna mína. Hún var rosalega hrifin af þessari mynd og bað mig að senda sér hana, sem ég gerði. Svo birtist myndin mín í kjölfarið.“ Myndin sem um ræðir var tekin á Hellisheiði fyrir rúmum tveimur vikum. Íslenskt landslag með fyrirsætu í kjól frá Skaparanum og rafmagnsstaurana í baksýn virðist hafa heillað þá ítölsku. Ásta segist lengi hafa heillast af rafmagnsstaurunum sem koma má auga á vítt og breitt um landið. „Formið á staurunum er skemmtilegt og mig hefur lengi langað að mynda þá. Ég fékk svo Ásgrím Má, hönnuð og stílista, til að stílisera fyrir mig og svo má geta þess að Guðrún Dögg sem sá um förðunina var líka í Mastered-skólanum, nema í förðunarprógramminu,“ bendir hún á.Ásta Kristjánsdóttir hefur verið af fullum þunga í faginu í um þrjú ár.Ásta segir gríðarleg tækifæri felast í að fá mynd birta á jafn stórum vettvangi og ítalska Vogue raunverulega er. „Það er ótrúlega gaman að fá að taka þátt í þessu og að komast í samband við Condé Nast er mjög gott. Þó svo að greiðslan fyrir birta mynd sé ekki há, þá fylgir svona birtingu mikil athygli og umfjöllun,“ segir Ásta og segir að vel geti verið að í kjölfarið muni stór verkefni dúkka upp. Ásta segist jafnframt alsæl með ljósmyndanámið. „Ég er eini Íslendingurinn sem fór í ljósmyndanámið. Mér finnst Íslendingar svolítið ragir við að nýta sér skóla á netinu, en ég fékk hins vegar mjög mikið út úr þessu námi,“ segir hún og ber hana saman við reynslu sína af árs löngu námi við Parsons School of Design í New York. Hún fagnar því sömuleiðis að landslagið sé að breytast talsvert með tilkomu samfélagsmiðlanna. „Þeir eru orðnir svo sterkir sem þýðir að það er hægt að fylgjast með því sem er að gerast, sama hvar maður er staddur í heiminum. Tækifærin verða þannig jafnari fyrir ljósmyndara eins og okkur hér á Íslandi,“ segir Ásta. Hægt er að skoða fleiri verk Ástu á heimasíðu hennar.
Tíska og hönnun Mest lesið Grease-stjarnan Susan Buckner látin Lífið Hera komst ekki áfram Lífið „Af hverju er oft vont að putta sig?“ Lífið Guðni forseti á samstöðutónleikum í Háskólabíó Lífið Eurovision-vaktin: Vonbrigði á fyrra undankvöldi Eurovision Lífið Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Lífið Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Lífið „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ Tónlist Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Lífið Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Lífið Fleiri fréttir Laufey skein skært á Met Gala Best klæddu stjörnurnar á Met Gala „Elska hraðann, pressuna og stressið“ Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Alltaf með naglaþjöl en gleymir stundum lyklunum Innsýn í fatahönnun framtíðarinnar Lófaklapp og litagleði á tískusýningu útskriftarnema Strangheiðarleg dreifbýlistútta og lopapeysan í uppáhaldi „Elska að hafa skipulagt kaos“ „Spyr mig oft hvort öll þessi vinna sé þess virði“ Listræn súkkulaðiupplifun og girnilegt smakk Menningarlífið iðar og HönnunarMars hefst á morgun Hefur hannað fyrir Miley Cyrus og Erykah Badu Íslensk skartgripahönnun á besta stað í New York Starfaði fyrir pólska herinn og sýnir nú skartgripi á Garðatorgi Kemur beint frá París með vistvæna tískustrauma „Frá naglalakki hjá ömmu í iðnaðarmann í skítugum fötum“ Myndavél frá afa algjör fjársjóður „Það mikilvægasta er að vera trúr sjálfum sér“ Munnskolið mikilvægt í förðunarstarfinu „Sjálfstraustið er besti fylgihluturinn“ Sjá meira