Þúsundir Pólverja mótmæltu ríkisstjórn landsins í dag Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. desember 2016 23:02 Mótmælin fóru fram á sama degi og Pólverjar minnast þess að 35 ár eru frá því að herlög voru sett í landinu af yfirvöldum þess tíma. Vísir/EPA
Þúsundir Pólverja mótmæltu ríkisstjórn landsins víðsvegar um Pólland í dag. Tilefni mótmælanna var tillögur ríkisstjórnarinnar um skerðingu á frelsi fólks til samkomu á opinberum vettvangi sem og aðför hennar að lýðræði í landinu. Guardian greinir frá.Verði tillögur stjórnarliða að veruleika verður öllum samkomum á vegum ríkisins á opinberum stöðum í Póllandi gefinn forgangur umfram aðrar samkomur sem skipulagðar eru af einstaklingum. Þannig muni ríkisvaldið takmarka útgefin leyfi fyrir einstaka stuðningsgöngum og mótmælagöngum. Í grunninn þýðir það að erfiðara yrði fyrir almenning að skipuleggja mótmæli gegn yfirvöldum. Í umsögn Evrópuráðsins um málið sagði mannréttindafulltrúi þess, Nils Muižneieks að tillögur stjórnvalda ættu ekki að verða að lögum þar sem þær vega að mannréttindum á sama tíma og þær skerði frelsi fólks til þess að geta komið saman á opinberum vettvangi að eigin vild. Tóku skipuleggjendur mótmælanna það fram að þeir væru að mótmæla ófrjálslyndri stefnu stjórnvalda en hætta væri á því að mikilvægar lýðræðisumbætur sem hefðu orðið í landinu frá falli kommúnismans árið 1989 gætu glatast. Dagsetning mótmælanna er táknræn en í dag minnast Pólverjar þess að 35 ár eru liðin frá því að kommúnistastjórn landsins setti á ströng herlög sem vörðu í nokkur ár í tilraun til þess að bæla niður pólítíska mótspyrnu, en þúsundir voru fangelsaðir á þeim árum og tugir létu lífið.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Sjá meira