Hélt tveimur mexíkóskum konum sem þrælum í 14 ár Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. ágúst 2016 12:32
Olga Murra 64 ára gömul kona sem búsett er í Texas í Bandaríkjunum hefur verið fundin sek um að halda tveimur mexíkóskum konum nauðugum heima hjá sér í 14 ár. Konurnar tvær voru í rauninni þrælar Murra sem sagði annarri þeirra að ef hún myndi ekki hlýða sér þá myndu yfirvöld koma og handtaka hana, drepa hana og grafa hana í fjöldagröf með öðrum ólöglegum innflytjendum. Refsinginni myndi reyndar ekki ljúka þar að sögn Murra. Hún sannfærði konurnar tvær um að hún væri „rödd Guðs“ og neyddi þær meðal annars til þess að hlusta á upptökur af henni að lesa upp úr Biblíunni á meðan þær þrifu heimili hennar, sem þær gerðu stundum á hverjum degi, að því er fram kemur í dómsskjölum sem Washington Post vísar í í umfjöllun sinni um málið. Ef konurnar hlýddu svo ekki Murra sagði hún þeim að þær myndu enda í helvíti. Konurnar unnu nánast á hverjum degi og máttu ekki tala við neinn annan en Murra á heimilinu þar sem þeim var haldið. Þær sváfu á gólfinu og þurftu að biðja um leyfi fyrir því að nota salernið. Murra lét konurnar þrífa um þrjú til fjögur heimili á dag, auk hennar eigin heimilis og þá lét hún þær elda fyrir sig. Hún hirti síðan launin þeirra fyrir heimaþrifin auk þess sem hún lét þær sækja um vinnu á McDonald‘s og Wal-Mart svo Murra gæti haft meiri innkomu. Murra fæddist í Bandaríkjunum en flutti til Mexíkó skömmu eftir hún fæddist og bjó þar þangað til hún flutti til El Paso í september 1997 en þaðan flutti hún til Fort Worth. Hún rak þriffyrirtæki í báðum borgunum. Þegar hún kom aftur til Bandaríkjanna ´97 kom hún með 33 ára gamla mexíkóska konu með sér og ári síðar fék hún aðra konu 21 árs að aldri til að koma. Konurnar voru síðan þrælar Murra næstu 14 árin og máttu þola ofbeldi og misnotkun af hálfu hennar. Murra var í liðinni viku fundin sek um að halda konunum tveimur nauðugum heima hjá sér og láta þær vinna fyrir sig. Þá var hún einnig fundin sek um að hýsa tvo ólöglega innflytjendur en konurnar voru ekki með dvalarleyfi í Bandaríkjunum. Enn á eftir að kveða upp dóm í málinu en Murra getur átt von á því að vera dæmd í 60 ára fangelsi fyrir glæpina.
Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Sjá meira